Handknattleiksdeild
Þrjú lið leika um Íslandsmeistaratitilinn á sunnudaginn
Handbolti - 4.fl. karla og kvenna
Í dag, laugardag fóru fram undnaúrslit í 4.flokki karla og kvenna. Grótta átti fjögur lið í þessum úrslitum og munu þrjú þessara liða leika sjálfan úrslitaleikinn á sunnudaginn. Hjá 4.flokki karla léku A-lið og B1 gegn Fram í Strandgötu. B1 tapaði 17-16 eftir hörkuleik og hefðu sannarlega átt skilið að leika úrslitaleikinn á morgun. A-liðið tryggði sér hins vegar sæti í úrsleiknum á morgun með sigri 19-18 í hörkuleik. Hjá 4.flokki kvenna vann A-liðið ÍBV 23-20 og B1-liðið Stjörnuna 23-14.
Á morgun, sunnudag verða því eftirfarandi leikir:
4.fl. karla B1-lið
Grótta 1 - FH kl. 10:00 - Strandgata
4.fl.karla A-lið
Grótta - FH kl. 16:00 - Strandgata
4.fl.kvenna - B1-lið
Grótta 1 - ÍBV kl. 12:00 - Austurberg
4.fl.kvenna - A-lið
Grótta - ÍBV kl. 16:00 - Austurberg
Hvetjum Gróttumenn til þess að mæta í Strandgötuna og í Austurberg á morgun og horfa á þessa framtíðarleikmenn.

