Handknattleiksdeild

Umspil að hefjast: Grótta - Víkingur á föstudaginn

Handbolti - Mfl. karla

20.4.2010

Á föstudaginn leikur meistaraflokkur karla fyrsta leik sinn í umspili um að halda sæti í N1 deildinni að ári. Leikið er gegn Víkingi í íþróttahúsi Seltjarnarness og hefst leikurinn kl. 19:30.

Grótta lenti sem kunnugt er í sjöunda sæti N1 deildarinnar. Það sæti þýðir að liðið tekur þátt í umspilinu. Fyrirkomulagið er þannig að Grótta leikur við liðið sem lenti í fjórða sæti í næstefstu deild. Það lið sem fyrr vinnur tvo leiki fer áfram og spilar við sigurvegara í viðureign liðanna sem lentu í öðru og þriðja sæti næstefstu deildar.

Laust sæti meðal þeirra bestu að ári er í húfi og því miklir hagsmunir að Grótta nái að klára þessa keppni sem í hönd fer. Andstæðingarnir eru sem fyrr segir Víkingur, gamla stórveldið úr Fossvogi, en þeir féllu úr N1 deildinni í fyrra og Grótta tók sæti þeirra. Liðin hafa mæst einu sinni í vetur sem var í bikarkeppninni. Sá leikur endaði með sigri Gróttu eftir tvíframlengdan leik. Má því búast við spennandi keppni við Víkinga.

Leikurinn á föstudag hefst sem fyrr segir kl. 19:30. Stuðningsmenn Gróttu verða sem fyrr með grillaða hamborgara á boðstólnum frá kl. 18.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Næstu leikir

Grótta - Haukar

Handbolti - Mfl. kvenna
Laugardaginn 4.feb
kl. 14:00
Seltjarnarnes
 

Fram - Grótta

Handbolti - Mfl. karla
Fimmtudaginn 2.feb
kl. 19:30
Framhús

 

Allir leikir


Útlit síðu:



handbolti6
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.