Handknattleiksdeild
Viðtal við Magnús Sigmunds
Handbolti - Mfl. karla
Í tilefni af fyrsta leik Gróttu og Víkings í umspili á föstudaginn fékk heimasíðan Magnús Guðbjörn Sigmundsson, markvörð liðins til að svara nokkrum spurningum. Magnús hefur verið einn albesti markvörður deildarinnar undanfarnar umferðir og varið hátt á þriðja tug skota nokkra leiki í röð. Það er von að Maggi verði í stuði á föstudaginn þegar liðið fær Víkinga í heimsókn. Leikurinn hefst kl. 19:30.
Fullt nafn: Magnús Guðbjörn Sigmundsson
Gælunafn: Massi
Hvernig kom það til að þú tókst fram skóna á ný og byrjaðir að spila með Gróttu: Hann Dóri vinur minn bað mig um að koma og hjálpa til þegar að Gísli Guðmunds meiddist.
Með hvaða liðum hefur þú spilað fyrir utan Gróttu: FH, ÍR, Haukum.
Hvenær byrjaðir þú að æfa handbolta: 1981 -1982 held ég.
Hvert var átrúnaðargoðið á yngri árum: Einar Þorvarða var ansi framarlega.
Skemmtilegasti leikur sem þú hefur tekið þátt í: Síðasti leikur tímabilsins árið 2000 í Strandgötunni (meistari með Haukum 2000)
Eftirminnilegasta frammistaðan þín: KA-Haukar 2001 (29. Skot varin) 5. leikur í úrslitum.
Hvað borðar þú fyrir leik: Góðan og hollan mat t.d skyr , pasta og eitthvað gott kjöt.
Ertu hjátrúafullur fyrir leiki (ef já, hvernig): Nei ég er ekki lengur hjátrúarfullur en ég vill hafa sviðað rútínu á hlutunum fyrir leiki.
Besti íslenski leikmaðurinn í dag: Held að það sé ennþá Óli Stef.
Efnilegasti íslenski leikmaðurinn í dag: Vildi segja Anton hjá okkur en þá dettur hann í ruglið. Óli Guðmunds í FH er mikið efni.
Erfiðasti andstæðingurinn: Siggi litli Eggerts úr Val hefur verið erfiður í vetur.
Auðveldasti andstæðingurinn: Klárlega Sigursteinn Arndal úr FH.
Besti samherjinn: Þeir eru allir ágætir en Matti og Ægir þegar við erum að spila.
Í hvaða íþróttahúsi finnur þú þig best: Það er íþróttahúsið við Strandgötu í Hafnarfiði.
Ef þú mættir breyta einni reglu í handbolta - hverju myndir þú breyta: Mundi vilja bæta inn reglu að það yrði spilað til þrautar (engin jafntefli ).
Hver er líklegastur til að fá rautt spjald í liðinu: Hjalti Pálma, hann er buff og svo Atli ef að leiktíminn er að renna út.
Hver er slakastur í fótbolta á æfingum: Allt yngra liðið er mjög slakt í fótbolta. Ægir virðist ekki vera með neinn vinstri fót í fótbolta sem að háir eldra liðinu.
Hver tuðar mest í hópnum: Addi Tedda, enda sektarstjóri. Svo tuða allir í honum.
Áttu ekki einhverja góða sögu úr boltanum: Enga sem er birtingarhæf.

