Handknattleiksdeild

4.flokkur karla Íslandsmeistarar

Handbolti - 4.fl. karla

22.4.2010

Um helgina lauk keppni í Íslandsmóti 4.flokks karla og fór úrslitahelgin fram í Strandgötu. A-liðið sigraði FH í úrslitaleik 30-27 og tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn með glæsibrag. B1 sigraði FH 23-19 í leik um 3.sætið og tryggðu sér brons. Frábær endir á vetrinum hjá 4.flokki karla en B2 hafði fyrr í vetur tryggt sér deildarmeistaratitil í 2.deild.

A-lið
Lék í undanúrslitum á laugardeginum gegn Fram. Leikir þessara liða hafa verið hnífjafnir í vetur og mikil spenna þegar þessi liðin hafa mæst og var þessi leikurinn ekkert frábugðinn fyrri leikjum. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og staðan jöfn 10-10 í hálfleik. Grótta tryggði sér síðan sigur 19-18 og sæti í úrslitaleiknum með marki Ólafs Ægis beint úr aukakasti þegar 2 sekúndur af leiknum. Verðskuldaður sigur Gróttumann sem sýndu frábæran varnarleik og markvörslu í þessum leik.

Mörk Gróttu skoruðu:
Ólafur Ægir Ólafsson - 5
Bjarni Guðmundsson - 4
Daði Gautason - 3
Egill Ploder Ottósson - 2
Brynjólfur Sigurðsson - 2
Alex Viktor Ragnarsson - 2
Kristinn Sigurðsson - 1

Lárus Gunnarsson varði 20 skot í markinu

Í úrslitaleiknum mættu þeir FH sem sigraði UMFA í undanúrslitum. Liðin höfðu mæst tvisvar sinnum fyrr í vetur og enduðu þeir báðir leikir með minnsta mun. FH sigraði á Seltjarnarnesi en Grótta í Kaplakrika. Leikurinn hófst með mikilli spennu og fóru fyrstu sóknirnar forgörðum hjá báðum liðum. FH náði síðan forystu 9-6 en með frábærri baráttu, góðri vörn og markvörslu leiddi Grótta 13-12 í hálfleik. Strákarnir mættu ákveðnir til seinni hálfsleiks og komust strax 3-4 mörkum yfir og létu þá forystu ekki af hendi. Í þessum leik sýndi liðið styrk sinn, breidd og voru öruggir í sínum aðgerðum. Lokatölur 30-27, góður liðssigur og Íslandsmeistaratitill staðreynd.

Mörk Gróttu skoruðu:
Ólafur Ægir Ólafsson - 8
Vilhjálmur Geir Hauksson - 8
Bjarni Guðmundsson - 7
Daði Gautason - 3
Alex Viktor Ragnarsson - 2
Egill Ploder Ottóson - 1
Kristinn Sigurðsson - 1

Lárus Gunnarsson varði 22 bolta í markinu

B1

Í undanúrslitum lék B1 gegn Fram eins og A-liðið. Liðið var nokkuð seint í gang í upphafi leiks en stigu svo upp og voru einu marki undir í hálfleik 10-9. Í seinni hálfleik fór liðið loks að spila sinn leik og voru meðal annars yfir 14-13 og fengu þá nokkur góð tækifæri til þess að komast tveimur mörkum yfir. Fram náði hins vegar að komast tveim mörkum. Grótta náði á að minnka muninn í eitt mark þegar lítið er eftir og vinna boltann og komast í hraðaupphlaup en því miður fór gott skot rétt fram hjá, lokatölur 17-16 fyrir Fram. Svekkjandi tap eftir hörkuleik staðreynd og hefði liðið svo sannarlega átt skilið að leika úrslitaleikinn. Vörn og markvarsla var góð í leiknum.

Markskor Gróttu var:
Pétur Árnason - 6
Gunnar Kolbeinsson - 4
Viktor Orri Þorsteinsson - 3
Helgi Hilmarsson - 2
Sölvi Rögnvaldssson - 1

Þórarinn Árnason varði 16 skot í leiknum

Mótherjar í leiknum um 3.sætið voru FH2. Strákarnir voru staðráðnir í sína styrk sinn og mættu vel tilbúnir í þennan leik. Í hálfleik var staðan 11-7 fyrir Gróttu. Í seinni hálfleik var sama uppá teningum og Grótta hélt áfram að spila sinn leik og unnu að lokum góðan sigur 23-19. Strákarnir áttu svo sannarlega skilið að ljúka þessum vetri í 3.sæti en þeir hafa sínt frábæra leiki og miklar framfarir í vetur.

Markskor Gróttu var:
Gunnar Kolbeinsson - 7
Viktor Orri Þorsteinsson - 5
Andri Geir Arnarson - 3
Helgi Hilmarsson - 3
Arnar Þór Axelsson - 2
Sölvi Rögnvaldsson - 2
Pétur Árnason - 1

Þórarinn Árnason varði 18 skot í leiknum

B2
Strákanir í B2 léku gegn Fram í 8-liða úrslitum laugardaginn 10.apríl og sýndu þar góðan leik. Í hálfleik var staðan 13-9 fyrir Fram og lokastaða 27-22 fyrir Fram. Strákanir geta engu að síður verið ánægðir með veturinn. Þeir unnu 2.deildina örugglega og sýndu góðan leik í 8-liða úrslitum gegn Fram.

A-lið íslandsmeistari

A-lið Íslandsmeistari
Efri röð frá vinstri: Arnar þjálfari, Daði Laxdal, Vilhjálmur Geir, Ólafur Ægir, Bjarni, Kristinn og Magnús Agnar þjálfari
Neðri röð frá vinstri: Alex Viktor, Egill Ploder, Brynjólfur og Viktor Orri.
Lárus markmaður liggur fyrir fram

B1 brons

B1-liðið með bronsverðlaunin
Efri röð frá vinstri: Arnar þjálfari, Gunnar, Helgi, Arnar Þór, Pétur Theodór, Ómar Hrafn, Jón Ingvar og Magnús Agnar þjálfari
Neðri röð frá vinstri: Viktor Orri, Andri Geir, Þórarinn, Sölvu og Sæmundur Karl.

 4.fl.karla_-B2-lid_deildarmeistari_2010

B2-liðið með deildarmeistaratitilinn í 2.deild
Efri röð frá vinstri: Arnar þjálfari, Andri Geir, Einar Þór, Sæmundur Karl, Hlynur Rafn, Styrmir, Steinn Arnar, Gunnar, Finnbogi og Magnús Agnar þjálfari
Neðri röð frá vinstri: Hjalti Már, Arnór, Björn, Vilhjálmur Gunnar, Bessi, Aron Dagur og Þorgeir Bjarki.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Næstu leikir

Grótta - Þróttur R

Knattspyrna - Mfl. karla
Laugardaginn 11.sept
kl. 14:00
Gróttuvöllur
 

Allir leikir


Útlit síðu:



fimleikamynd3
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.