Handknattleiksdeild
Grótta í úrslit umspilsins !
Handbolti - Mfl. karla
Leikur tvö í einvígi Gróttu og Víkings fór fram í Fossvogi í gćr. Grótta vann leik eitt á heimavelli á föstudaginn. Međ sigri í gćr gat liđiđ tryggt sig í úrslitaleiki umspilsins um sćti í N1 deild ađ ári. Gróttu tókst ađ landa sigri og vann ţar međ einvígiđ 2-0. Framundan eru ţví úrslitaleikir gegn Aftureldingu sem ráđa ţví hvort Grótta spilar áfram međal ţeirra bestu í N1 deildinni á nćsta tímabili.
Grótta hafđi ađ mestu frumkvćđi í leiknum í gćr. Liđin skiptust ţó um ađ hafa forskot fyrstu 15 mínúturnar en eftir ţađ seig Grótta fram úr og hafđi 15-13 forystu í hálfleik. Í síđari hálfleik hafđi Grótta alltaf forystu og landađi ađ lokum sanngjörnum sigri, 29-26.
Mađur leiksins var Heiđar Ađalsteinsson sem skorađi 9 mörk. Besti leikur Heiđars á tímabilinu, sem kom á besta tíma. Arnar Freyr Theódórsson stjórnađi sóknarleik liđsins af mikilli fagmennsku, átti ţátt í mörgum mörkum og skorađi sjálfur 5 mörk. Anton Rúnarsson, sem skorađi 13 mörk í fyrri leiknum, átti einnig góđan leik og skorađi 8 mörk.
Stuđningsmenn Gróttu hafa veriđ til fyrirmyndar í allan vetur, eins og öllum er kunnugt um. Í leiknum í gćr áttu ţeir enn einn stórleikinn og allur vafi var tekinn af ţví hvađa stuđningsmenn standa öđrum framar hér á landi.
Dómarar leiksins voru Brynjar Einarsson og Vilberg Flóvent Sverrisson og áttu ţeir frábćran dag.
Gróttasport.is náđi tali af Önnu Erlings, sigurreifum stjórnarmanni Gróttu, í leikslok. "Strákarnir sýndu rosa karakter međ ţví ađ klára einvígiđ viđ Víking í tveimur leikjum. Nú er bara ađ loka ţessu međ sigri á Aftureldinu. Leikurinn í kvöld var ćđislegur og sérstaklega var Heiđar rosalegur í horninu. Ţađ býr svo mikiđ í ţessum strák" sagđi Anna glöđ í bragđi.
Nćsti leikur er gegn Aftureldingu. Leikurinn verđur spilađur á Nesinu laugardaginn 1. maí, ţ.e. á sama degi og árshátiđ Lenín/Marx-ađdáendaklúbbsins fer fram víđa um land. Ţađ liđ sem vinnur tvo leiki verđur í N1 deildinni á nćsta tímabili. Nánar verđur fjallađ um leikinn á síđunni á nćstu dögum.

Hart tekist á.

Ţótt ótrúlegt megi virđast fékk Víkingurinn 2 mín brottvísun fyrir ţetta. Auk ţess fćr Víkingur reikning upp á nýja treyju.

Liđiđ ţakkar ţeim fjölmörgu áhorfendum sem lögđu leiđ sína í Víkina.

