Handknattleiksdeild
Fyrsti leikur í umspili á laugardag. Fyllum húsið
Handbolti - Mfl. karla
Á laugardaginn, 1. maí, leikur Grótta sinn fyrsta leik í umspili um að tryggja sæti í N1 deildinni á næsta tímabili. Andstæðingarnir eru Afturelding úr Mosfellsbæ. Það lið sem fyrr vinnur tvo leiki leikur í N1 deildinni en hitt í næstefstu deild. Leikurinn hefst kl. 16:00.
Lið Aftureldingar endaði í öðru sæti 1. deildar, á eftir Selfossi, eftir að hafa tapað hreinum úrslitaleik í lokaumferðinni. Þjálfari liðsins er Gunnar Andrésson sem lék með liðinu um margra ára skeið en Gunnar er fyrrverandi landsliðsmaður og hefur getið sér gott orð sem þjálfari í Sviss. Með liðinu leika bæði reynslumiklir menn og ungir og efnilegir leikmenn. Búast má við spennandi leikjum.
Það er ljóst að stuðningsmenn Aftureldingar munu fjölmenna á Nesið á laugardaginn. Gróttumenn mega ekki láta sitt eftir liggja í þeim efnum. Fyllum húsið og tryggjum áframhaldandi sæti í N1 deild að ári

