Handknattleiksdeild

Rútuferðir í Mosfellsbæ (100 sæti)

Handbolti - Mfl. karla

2.5.2010

Þá er ljóst að hin svokallaða Krísuvíkurleið verður farin alla leið þennan veturinn. Léttleikandi lið Aftureldingar lagði okkar menn á Nesinu í fyrsta leik og Gróttan því kominn upp við vegg í leiknum gegn Mosfellingum að Varmá. Ekkert nema sigur er í boði ef N1 sætið skal tryggt !

Stuðningsmannalið Mosfellinga var mjög öflugt og ólíklegt annað en að þeir komi enn stemmdari til leiks á sínum heimavelli á mánudagskvöld.

Mikilvægt er að fjölmenni verði af Nesinu og mikilvægt er að mæta snemma þar sem ljóst er að húsið verður orðið fullt nokkru fyrir leik. Aðeins er búið að taka frá 200 miða á nafni Gróttu sem verða í miðasölunni að Varmá. 

BOÐIÐ VERÐUR UPP Á RÚTUFERÐIR AF NESINU. 
BÍLARNIR FARA FRÁ ÍÞRÓTTAHÚSI SELTJARNARNESS KL. 18:20 
TIL BAKA STRAX AÐ LEIK LOKNUM. 

Mætum öll að Varmá og tryggjum oddaleik á Nesið. 

Það verður einfaldlega allt brjálað!!

Áfram Grótta!

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Næstu leikir

Grótta - Haukar

Handbolti - Mfl. kvenna
Laugardaginn 4.feb
kl. 14:00
Seltjarnarnes
 

Fram - Grótta

Handbolti - Mfl. karla
Fimmtudaginn 2.feb
kl. 19:30
Framhús

 

Allir leikir


Útlit síðu:



handbolti6
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.