Handknattleiksdeild

4.fl. kvenna Íslandsmeistari A og B-liða

Handbolti - 4.fl. kvenna

4.5.2010

Helgina 17.-18. apríl fóru fram undanúrslita- og úrslitaleikir um Íslandsmeistaratiltla A og B-liða í 4. flokki kvenna. Leikirnir fóru fram í Austurbergi. Þar sem Gróttustelpurnar höfðu orðið deildarmeistarar bæði A-liða og B-liða og   B-2 í öðru sæti  í vetur ríkti mikil eftirvænting og markmiðið var að landa báðum Íslandsmeistaratitlunum.  Það hefur verið mikill stígandi í leik stelpnanna í vetur og  liðsheildin sterk bæði í vörn og sókn og því engin ástæða til annars en að setja markið hátt.

A-liðið

Eftir að hafa sigrað lið Víkings í miklum baráttuleik í 8-liða úrslitum spiluðu stelpurnar við lið ÍBV í undanúrslitum.  Leikurinn var æsispennandi og var það umtalað meðal áhorfenda að stelpurnar mættu ekki leggja svona mikla pressu á aðstandendahópinn.  Stelpurnar sjálfar höfðu hins vega stáltaugar inni á vellinum og létu ýmiss konar mótlæti þar ekki ná neinum tökum á sér og unnu leikinn verðskuldað 23-20. Í hálfleik var staðan 12-10.

Mörk Gróttu skoruðu

Auður Á Baldursdóttir 6 mörk
Eva B Davíðsdóttir 6 mörk
Sigrún Arnarsdóttir 4 mörk
Ásgerður D Jóhannesdóttir 3 mörk
Katinka Björnsdóttir 2 mörk
Auður Karlsdóttir 1 mark
Sóley Arnardóttir 1 mark

Í úrslitum mættu stelpurnar liði ÍR.  Gróttu-stelpurnar höfðu undirtökin mestallan leikinn og svöruðu öllum áhlaupum ÍR-stelpna. Það var ljóst frá fyrstu mínútu að þær ætluðu sér titilinn og eftir því sem leið á seinni hálfleik varð æ ljósara að þær myndu uppskera árangur erfiðisins.  Í leikslok braust út mikill fögnuður og var Íslandsmeistaratitlinum fagnað innilega.  Grótta vann leikinn 25-21 eftir að hafa verið yfir í hálfleik 16-12.

Stelpurnar og þjálfararnir höfðu undirbúið sig vel fyrir báða þessa leiki og ekkert í sókanaraðgerðum andstæðinganna kom á óvart.  Varnarleikur liðsins bar þess merki og má segja að öflugur varnarleikur og fjölbreyttur sóknarleikur hafi skilað stelpunum titlum vetrarins.  Ekki má gleyma þætti stuðningshópsins sem hefur sungið og hvatt stelpurnar óspart áfram í allan vetur.

B-liðin

Grótta 2 féll út í 8-liða úrslitum eftir svekkjandi tap á móti Fylki sem nýtti sér liðsstyrk úr A-liði sínu til að sigra 15-13. Gróttu stelpurnar áttu fyllilega skilið að spila þessa helgi og það er svekkjandi að HSÍ hafi ekki brugðist strax við og dæmt Gróttu sigurinn. Klárt mál að stelpurnar hefðu klárað veturinn með sæmt og hugsanlega farið alla leið og mætt Gróttu1 í úrslitum.

Mörk Gróttu:

Salome Grímsdóttir 6 mörk
Ingibjörg Bjarnardóttir 4 mörk
Hrafnhildur Magnúsdóttir 1 mark
Dagný Haraldsdóttir 1 mark
Gunnhildur Ýr Gunnarsdóttir 1 mark 

Grótta 1 sigraði hins vegar ÍR 1 í átta liða úrslitum 21-11. Gróttu stelpurnar sýndu bæði í undanúrslitum og úrslitaleiknum að það var engin tilviljun að þær urðu deildarmeistar.  Markvarsla, varnarleikur og sóknarleikur til fyrirmyndar og barátta og einbeiting frá fyrstu til síðustu mínútu.  Í undanúrslitaleiknum unnu stelpurnar lið Stjörnunnar 23-14 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 14-7 , stelpurnar mættu einbeittar í leikinn og höfðu yfirburði allan leikinn og léku léttan og skemmtilegan bolta.   

Mörk Gróttu skoruðu

Sara Linneth 8 mörk
Guðný Hjaltadóttir 5 mörk
Berglind Jónsdóttir 3 mörk
Snædís E Leósdóttir 2 mörk
Berglind Gunnarsdóttir 2 mörk
Ragnhildur 2 mörk
Rúna Sigtryggsdóttir 1 mark


Í úrslitaleiknum unnu stelpurnar lið ÍBV 16-8 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 8-3 , það var sama hér þær mættu ákveðnar í leikinn og yfirspiluðu ÍBV strax í upphafi og héldu einbeitingunni út allan leikinn og sigruðu verðskuldað eftir frábæran vetur  þar sem þær hafa haft yfirburði deildinni og unnu hana með 128 mörkum í plús, sem verður að teljast frábært. Mikill efniviður þarna á ferðinni og verður gaman að fylgjast með þeim næstu ár

 
Það er ljóst að Grótta hefur mikinn og góðan efnivið í 4. flokki.  Á þessu þarf að byggja og nýta þann góða meðbyr sem deildarmeistaratitlar og Íslandsmeistaratitlar gefa.  Til hamingju stelpur, til hamingju strákar, til hamingju Grótta, til hamingju þjálfarar og aðstandendur.
Áfram Grótta.

______________________________________________

Myndir frá vetrinum og úrslitaleikjunum er hægt að sjá á myndasíðu Eyjólfs Garðarssonar; http://www.quake.is/myndir/gallery/album286

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Næstu leikir

Grótta - Haukar

Handbolti - Mfl. kvenna
Laugardaginn 4.feb
kl. 14:00
Seltjarnarnes
 

Fram - Grótta

Handbolti - Mfl. karla
Fimmtudaginn 2.feb
kl. 19:30
Framhús

 

Allir leikir


Útlit síðu:



fotbolti5
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.