Handknattleiksdeild

Uppskeruhátíð Handknattleiksdeildar Gróttu

Handbolti - Yngri flokkar

25.5.2010

Ágætu foreldarar/forráðamenn

Mánudaginn 31. maí, haldin hin árlega uppskeruhátíð Handknattleiksdeildar Gróttu í Íþróttamiðstöð Seltjarnarness. Dagskráin hefst með verðlaunafhendingu en veitt verða verðlaun fyrir frammistöðu vetrarins í öllum yngri flokkum félagsins. Uppskeruhátíðin verður tvískipt að þessu sinni, yngstu flokkarnir fyrst og síðan eldri flokkarnir.

8. - 7. - 6. og 5. flokkur karla og kvenna. - Dagskrá á milli kl. 17:00-19:00
4. - 3. og 2.flokkur karla og kvenna - Dagskrá á milli kl. 19:30-21:00

Að lokinni verðlaunaafhendingu verður haldin grillveisla í boði handknattleiksdeildarinnar og foreldra fyrir alla.

Foreldrar/forráðamenn iðkenda eru vinsamlegast beðnir um að koma með einn pylsu- og pylsubrauðspakka í sameiginlega grillveislu fyrir iðkendur og fjölskyldur þeirra.

Deildin mun bjóða upp á meðlæti og drykki.

Foreldrar og forráðamenn eru velkomnir.

Með bestu sumarkveðju,
Unglingaráð Handknattleiksdeildar Gróttu



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Næstu leikir

Grótta - Haukar

Handbolti - Mfl. kvenna
Laugardaginn 4.feb
kl. 14:00
Seltjarnarnes
 

Fram - Grótta

Handbolti - Mfl. karla
Fimmtudaginn 2.feb
kl. 19:30
Framhús

 

Allir leikir


Útlit síðu:



fimleikamynd1
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.