Handknattleiksdeild

Fjöldi leikmanna á landsliðsæfingum

Handbolti - Yngri flokkar

21.6.2010

Árni Benedikt Árnason og Þráinn Orri Jónsson voru valdir í U18-ára landslið karla sem fór til Belgíu í lok maí. Þar lék liðið í undankeppni EM en liðið lék gegn heimamönnum í Belgíu, Úkraínu og Króatíu. Liðið vann Belgíu og Úkraínu nokkuð örugglega en tapaði naumlega gegn Króatíu. Með þeim úrslitum komst liðið í lokakeppni EM en hún verður haldin í Svartfjallalandi í ágúst. Árni og Þráinn léku vel með liðinu og skoruðu fjögur mörk hvor. Árni lék 17 leiki í vetur með meistaraflokki karla og skoraði í þeim 6 mörk. Þráinn var í æfingahóp meistaraflokks og var nálægt því að vera í leikmannahóp liðsins.

Alex Viktor Ragnarsson, Bjarni Guðmundsson, Daði Laxdal Gautason, Lárus Gunnarsson, Ólafur Ægir Ólafsson og Vilhjálmur Geir Hauksson voru valdir í U16-ára landsliðs karla sem æfði í byrjun júní. Strákarnir eru hluti af íslandsmeistaraliði Gróttu, en þeir hafa flestir orðið þrefaldir íslandsmeistarar í gegnum tíðina.

Ásgerður Dúa Jóhannesdóttir, Eva Björk Davíðsdóttir og Sóley Arnarsdóttir voru valdar í U16-ára landsliðs kvenna sem æfði í byrjun júní. Þær eru einnig hluti af íslandsmeistaraliði Gróttu og hafa orðið þrefaldir íslandsmeistarar í gegnum tíðina.

Um miðjan júní var Handboltaskóli HSÍ haldinn í 17. sinn. Í skólanum æfa leikmenn undir handleiðslu landsliðsþjálfara HSÍ. Þeir strákar sem voru valdir í skólann voru: Arnór Guðjónsson, Arnar Þór Helgason, Bessi Jóhannsson, Hjalti Már Hjaltason og Ólafur Baldvin Thors. Af stelpum voru valdar: Elín Jóna Þorsteinsdóttir, Laufey Helena Gísladóttir, Rúna Eybjörg Sigtryggsdóttir og Sóley Ragnarsdóttir.

Heimasíðan óskar öllu þessum glæsilegu landsliðskrökkum til hamingju með valið og vonar að þetta eigi eftir að vera upphafið að einhverju stærra.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Næstu leikir

Grótta - Haukar

Handbolti - Mfl. kvenna
Laugardaginn 4.feb
kl. 14:00
Seltjarnarnes
 

Fram - Grótta

Handbolti - Mfl. karla
Fimmtudaginn 2.feb
kl. 19:30
Framhús

 

Allir leikir


Útlit síðu:



fimleikamynd1
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.