Handknattleiksdeild
Spennandi sigur gegn sterkum Safamýrarpiltum
Handbolti - 3.fl. karla
Grótta og Fram mættust í Íslandsmótinu í 3.flokki karla á laugardaginn og reiknað var með hörkuleik þessara liða. Staða liðanna í deildinni var svipuð og hafa leikir þessara liða undanfarin ár verið spennandi en Framarar eru ríkjandi Íslandsmeistarar 3 flokks karla.
Leikurinn fór rólega af stað en varnir liðanna voru fínar og markvarslan sæmileg. Það komust ekki mörg skot á markið fyrstu mínúturnar og eftir 10 mín var staðan 5-3 fyrir Gróttu. Grótta leiddi allan fyrri hálfleikinn með 2-3 mörkum en Frammarar náðu að minnka í eitt mark fyrir hálfleik og staðan var því 13-12 fyrir Gróttu.
Frammara komu ákveðnari til leiks í þeim síðari og náðu að jafna 14-14. Þá var eins og Gróttu liðið vaknaði til lífsins og skoruðu nokkur mörk í röð og komust í 18-14 og 20-16. Liðið náði aldrei að komast í fimm marka forystu og nýttu Framarar sér það með því að minnka muninn í tvö mörk. Framarar héldu áfram og minnkuðu muninn niður í eitt mark 20-19 og fimmtán mínútur eftir af leiknum og kominn mikill spenna í leikinn.
Þegar 10 mínútur voru eftir var staðan 22-21 og allt á suðupunkti en Grótta náði að komast í 26-23 þegar aðeins 3 mínútur voru eftir. Grótta fékk þá hraðaupphlaup til þess að gera út af við leikinn sem nýttist ekki og Fram minnkaði muninn í tvö mörk. Grótta fékk aftur tækifæri til að klára leikinn en misnotaði víti en það hefði tryggt úrslitin þar sem aðeins tvö mínútur voru eftir en í staðinn ná Frammara að minnka muninn enn og aftur og tæp ein mínúta eftir, staðan 26-25 og Grótta með boltann.
Sókn Gróttu gekk ekki sem skyldi og Frammara fengu boltann þegar um 12 sekúndur voru eftir og fengu gott færi úr horninu en sem betur fer fór skotið þeirra framhjá og Grótta fagnaði gríðarlega mikilvægum sigri. Sigurinn var mjög tæpur í lokin en Grótta hefði getað klárað leikinn með því að nýta dauðafærinn á síðustu mínútum en það vonandi gerist bara í næsta leik. En fjölmargir áhorfendur fengu spennandi lokamínútur og allt fyrir peninginn í þessum leik!
Grótta leiddi leikinn allan leikinn og var með ákveðið frumkvæði stærsta hluta leiksins, vörnin var fín lengstum af undir góðri stjórn Bjarna og Gunna, markvarslan var góð í síðari hálfleik og sóknarleikurinn var dreginn áfram af Helga og Agli .
Mörk/skot
Egill 9/10
Helgi 4/8
Villi 3/12
Óli Ægir 3/8 (þar af 2 víti)
Bjarni 2/3
Alex 2/3
Gunni 3/3
Viktor 0/1
Lárus varði 19 skot eða 43%.

