Handknattleiksdeild
Grótta komið í undanúrslit í bikar
Handbolti - 4.fl. karla
4.flokkur karla komst á dögunum í undanúrslit í Eimskipsbikar 4.flokks karla þegar liðið mætti Frömurum hérna á Nesinu. Framarar höfðu fyrir leikinn ekki tapað leik á tímabilinu en Grótta komst næst því í deildarkeppninni fyrr í vetur þegar Framarar stálu sigrinum í lokin. Þessi bikarleikur þróaðist mjög svipað og sá leikur en varnarleikur og markvarsla voru allsráðandi hjá báðum liðum.
Til að mynda skoruðu Framarar ekki sitt fyrsta mark fyrr en á 8.mínútu en þá jöfnuðu þeir, 1-1.
Segja má að fyrri hálfleikur hafi verið jafn og skemmtilegur en Grótta hafði alltaf frumkvæðið. Í hálfleik var staðan 8-8 en Grótta hefði með góðu móti getað verið yfir með nokkrum mörkum í hálfleiknum. Þónokkur dauðafæri fóru forgörðum en heilt yfir spilaði liðið gríðarvel.
Síðari hálfleikur var mjög keimlíkur þeim fyrri; varnarleikur og markvarsla til fyrirmyndar en það kom að því að sóknarleikurinn hökti. Engu að síður náði liðið dýrmætum mörkum á ögurstundum, sérstaklega þegar liðið manni og mönnum færri en liðið þurfti að dúsa í 12 mínútur utan vallar í leiknum, þar af 10 mínútur í síðari hálfleik. Þegar uppi var staðið vann Grótta leikinn 17-15 í spennuþrungnum leik. Með þeim sigri er liðið komið í undanúrslit í Eimskipsbikarnum sem verða spiluð í byrjun febrúar.
Markaskor:
Aron Dagur Pálsson - 4 mörk
Ólafur Baldvin Thors - 4 mörk
Arnar Þór Helgason - 3 mörk
Hjalti Már Hjaltason - 3 mörk
Arnór Guðjónsson - 2 mörk
Þorgeir Bjarki Davíðsson - 1 mark
Markvarsla:
Bessi Jóhannsson - 14 skot

