Handknattleiksdeild
FH - Grótta í kvöld í Eimskipsbikarnum
Handbolti - Mfl. kvenna
Í kvöld leikur Grótta í átta liða úrslitum Eimskipsbikars kvenna en þá mætir liðið FH-stúlkum í Kaplakrika. Með sigri tryggir Gróttuliðið sér sæti í undanúrslitum bikarsins.
Liðin hafa mæst einu sinni í vetur í deildinni og þá endaði leikurinn með jafntefli eftir gríðarlega góðan síðari hálfleik okkar stúlkna.
Mætum öll í Hafnarfjörðinn í kvöld og styðjum stúlkurnar okkar í baráttunni. Leikurinn hefst kl. 19:30.
Áfram Grótta !

