Handknattleiksdeild

Grótta C vann FH A í 8-liða úrslitum bikarsins

Handbolti - 5.fl. kvenna

9.2.2008

5. flokkur kvenna í Gróttu hefur í ár sent lið í keppni 4. flokks. Þar hafa þær keppt sem b-lið og spilað í 2. deild auk þess sem þær hafa tekið þátt í bikarkeppni 4. flokks. Á fimmtudaginn kepptu þær í 8. liða úrslitum bikarsins við A-lið FH. Grótta byrjaði leikinn betur og náði fljótt 3ja marka forskoti sem þær héldu fram í hálfleik en þá var staðan 7-4.

Þessi munur hélst allt þar til 5 mínútur voru til leiksloka þegar staðan var 17-14 en á síðustu mínútunum náði FH á jafna 17-17 og ná boltanum þegar 1 mínúta var eftir. Gróttustelpur náðu hins vegar boltanum, komust í hraðaupphlaup og fengu dæmt víti þegar 30 sek. voru eftir. Grótta skoraði og FH náði ekki að nýta sér síðustu sóknina. Þetta var frábær sigur hjá 5. flokknum sem byggðist á mikilli breidd, frábærri vörn og markvörslu og skynsemi á mikilvægum tímum í leiknum.

Það verður gaman að fylgjast með þessum stelpum í framtíðinni því þær sýndu á fimmtudagskvöld að þeim eru allir vegir færir.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Næstu leikir

Grótta - Haukar

Handbolti - Mfl. kvenna
Laugardaginn 4.feb
kl. 14:00
Seltjarnarnes
 

Fram - Grótta

Handbolti - Mfl. karla
Fimmtudaginn 2.feb
kl. 19:30
Framhús

 

Allir leikir


Útlit síðu:



fimleikamynd4
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.