Handknattleiksdeild

Partille Cup 2008 - Upplýsingar

Hanbolti - Yngri flokkar

2.3.2008

Núna eru 4 mánuðir í brottför til Gautaborgar. Gróttuhópurinn verður einstaklega stór í ár, en eins og staðan er í dag hafa 132 iðkendur greitt inn staðfestingargjald og þjálfara og fararstjórahópurinn mun telja 25-30 manns. Þetta þýðir að iðkendur, þjálfarar og fararstjórar frá Gróttu telja sennilega yfir 160 manns. Þar að auki verður nokkuð stór hópur af foreldrum á eigin vegum.

En nokkuð hefur verið um fyrirspurnir varðandi dagsetningar, flug og foreldra á eigin vegum ásamt fleiru.

Hér er upplýsingaskjalið sem sent var út eftir foreldrafundinn í haust. Þar eru allar mikilvægustu upplýsingarnar. Þeir einstaklingar sem eru með einhverjar séróskir, eins og t.d. að fylgja ekki hópnum í flugi og hafa ekki látið vita sérstaklega eru beðnir um að senda póst á arnarth@gmail.com .

Við stefnum á að halda fund í næstu eða þar næstu viku fyrir þá foreldra sem ætla að vera í Gautaborg á eigin vegum. Þar gefst foreldrum sem eru búin að bóka sig til Gautaborgar eða hafa áhuga, til þess að stilla saman strengi sína.

Við bendum foreldrum aftur á að hafa samband við Íþróttadeild Úrval Útsýn, þurfi þau einhverja aðstoð við að bóka flug eða gistingu. Að lokum minnum við á söluna á ýsubitunum, en skila þarf sölutölum föstudaginn 7.mars nk. og afhending fer fram þriðjudaginn 11.mars.

Fyrir hönd Handknattleiksdeildar Gróttu,
Arnar Þorkelsson
arnarth@gmail.com



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Næstu leikir

Grótta - Haukar

Handbolti - Mfl. kvenna
Laugardaginn 4.feb
kl. 14:00
Seltjarnarnes
 

Fram - Grótta

Handbolti - Mfl. karla
Fimmtudaginn 2.feb
kl. 19:30
Framhús

 

Allir leikir


Útlit síðu:



fimleikamynd3
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.