Handknattleiksdeild
5.flokkur kvenna - C1-lið Íslandsmeistari - Umfjöllun
Handbolti - 5.fl. kvenna
Gróttustelpur gerðu það ekki endasleppt helgina 18.-20. apríl en þá tóku þær þátt í síðustu umferð Íslandsmótsins í handknattleik. Leikið var í Vodafonehöllinni að Hlíðarenda og var þetta mót kennt við Pennann sem var styrktaraðili mótsins. Auk Gróttu voru það tvö lið frá ÍR og Fylkir sem voru í 1.deild í mótinu.
Er skemmst frá því að segja að Grótta sigraði mótið. Líkt og á fyrri mótum vetrarins unnu þær alla leikinu og því mótið með glæsibrag. Sannarlega glæsileg frammistaða að hafa unnið alla leiki vetrarins. Í öðru sæti varð ÍR2 og í þriðja sæti ÍR1.
Í lok móts var verðlaunaafhending bæði fyrir mótið en einnig fyrir Íslandsmótið í heild sinni. Þar voru stelpurnar okkar krýndir Íslandsmeistarar og unnu þær hvern einasta leik á mótum vetrarins. Sannarlega glæsilegur árangur hjá þessum upprennandi handboltastjörnum. ÍR1 varð í öðru sæti og ÍR2 í því þriðja.
Til hamingju stelpur og ekki síður Hidda þjálfari sem á svo sannarlega sinn þátt í þessum frábæra árangri.


