Handknattleiksdeild

3.flokkur kvenna í 1. deild í vetur

Handbolti - 3.fl. kvenna

15.9.2008

Um helgina var spiluð forkeppni Íslandsmótsins í 3.flokki kvenna. Grótta, ÍBV, Fjölnir og Afturelding spiluðu í E-riðli á Nesinu. Skammt er frá því að segja að Grótta tryggði sér sæti í 1. deild í vetur með því að vinna riðilinn. Fyrsti leikurinn var á móti ÍBV þar sem við náðum góðum sigri 22-15. Síðan voru það Fjölnis stelpur sem lentu í klónum á stelpunum okkar og þar vannst sannfærandi sigur 28-15.
 
Afturelding varð því miður að gefa leikinn á móti okkur á sunnudeginum, þar sem þær náðu ekki í lið vegna mikilla forfalla á laugardeginum. Allur stelpurnar tóku þátt í leikjunum tveimur og stóðu sig með mikilum sóma.
 
Í 3.flokki kvenna æfa 24 stelpur, sem er alveg frábært. Framundan er skemmtilegur vetur, stelpurnar eru duglegar að æfa og eru staðráðnar í því að standa sig vel. Það verður svo sannarlega gaman að fylgjast með þessum ungu og upprennandi handboltastjörnum Gróttu í vetur.


Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Næstu leikir

Grótta - Haukar

Handbolti - Mfl. kvenna
Laugardaginn 4.feb
kl. 14:00
Seltjarnarnes
 

Fram - Grótta

Handbolti - Mfl. karla
Fimmtudaginn 2.feb
kl. 19:30
Framhús

 

Allir leikir


Útlit síðu:



fimleikamynd2
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.