Handknattleiksdeild
Mikil fjölgun í 3.flokki kvenna
Handbolti - 3.fl. kvenna
Mikil fjölgun hefur orðið í 3.flokki kvenna í vetur. Þegar veturinn hófst voru 17 stelpur að æfa en núna eru þær orðnar tæplega 30 talsins. Það þurfti að bæta þurfti liði við til keppni í Íslandsmóti svo að allar stelpurnar fengju að spila í vetur. Þess vegna er eitt Gróttuliðið í 1.deild og hitt í 2.deild. Þjálfari flokksins er Sóley Halldórsdóttir. Á mánudaginn kom Ágúst Þór Jóhannsson í heimsókn á æfingu hjá 3.flokknum og sá um þá æfingu. Ágúst er núverandi þjálfari meistaraflokks karla í Gróttu og fyrrverandi landsliðsþjálfari kvenna. Honum leist mjög vel á stelpurnar og sagði þær mikil efni.
Sóley Halldórsdóttir, Jónas Freyr Guðbrandsson aðstoðarþjálfari og stelpurnar í 3.flokki kvenna voru ánægðar með æfinguna hans Gústa og vonuðu að hann myndi kíkja við aftur í vetur.
Hérna má sjá nokkrar myndir af æfingunni.





