Handknattleiksdeild

Grótta - FH: Stórleikur í bikarkeppni 2.flokks í kvöld kl. 20:00

-þetta gerist ekki á hverjum degi

26.11.2008

Góðir gestir, þetta er stórleikur ársins! Lið 2. flokks Gróttu er komið saman á ný og er skipað leikmönnum úr gamla gullaldarliði árgangsins. Flestir eru hættir handboltaiðkun en hafa þó engu gleymt. Landsliðskempan Ægir Steinarsson mun eiga endurkomu á gólfið ásamt fótboltahetjunum Pétri Má og Einari Bjarna. Aðrar þekktar hetjur munu leika listir sínar í Sláturhúsinu á Seltjarnarnesi í kvöld á má þar nefna Seltirning júlímánaðar, Guðmund Braga Árnason, sem sló eftirminnilega í gegn með meistaraflokki Gróttu í fótbolta síðasta sumar. Nonni sprengja, Maggi póló, Raggi sax, verða einnig í eldlínunni að ógleymdum einu starfanda handboltamönnunum, Hauki Karlssyni og Vestmannaeyingnum og aldursforseta liðsins Óttari Steingrímssyni. Liðinu stýrir að sjálfsögðu Arnar Kristinn Þorkelsson en hann gerði garðinn frægann með þessum árgöngum í yngri flokkunum og halaði þar inn, ásDolli og Davíð skrifa undiramt liðinu,  ófáa bikara og medalíur í bikaraskáp Seltirninga. Aðstoðarmaður Arnars í kvöld verður enginn annar en Hörður Morthens sem seldur var á dögunum til stórliðs Stjörnunnar fyrir metfé.

Lið FH er heldur ekki skipað neinum aukvisum, en ef heppnin er með áhorfendum mun landsmaðurinn Aron Pálmarsson spila með liðinu en hann lék á dögunum sinn fyrsta A-landsleik. Munu hann og Bragi eflaust há harða rimmu á miðjunni og er alls óljóst hvernig því stríði mun ljúka. Þessir árangar FH náðu einnig góðum árangri í yngri flokkunum og hafa unnið fjöldann allan af Íslandsmeistaratitlum og hafa einnig náð góðum árangri á erlendri grundu.

Kæru áhorfendur!, þetta er tækifæri sem þið ættuð ekki að láta fram hjá ykkur fara. Mætið í íþróttahús Gróttu í kvöld og hvetjið strákana til sigurs í þessari fyrstu umferð bikarkeppninnar. Getur stuðningur ykkar skipt sköpum í leið liðsins í Laugardalshöllina og því tilvalið að koma við og láta vel í sér heyra.

 

Leikurinn hefst kl. 20:00 í kvöld

Áfram Grótta!



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Næstu leikir

Grótta - Haukar

Handbolti - Mfl. kvenna
Laugardaginn 4.feb
kl. 14:00
Seltjarnarnes
 

Fram - Grótta

Handbolti - Mfl. karla
Fimmtudaginn 2.feb
kl. 19:30
Framhús

 

Allir leikir


Útlit síðu:



fotbolti4
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.