Nýjustu úrslit

28.3.2010 Nýjustu úrslit : FH - Grótta: 23 - 30

Lið Gróttu lagði leið sína í Hafnarfjörð í gær og atti kappi við FH, stórveldið í Hafnarfirði. Grótta spilaði einn besta leik sinn í vetur og vann glæstan sigur 30-23. Tvö mikilvæg stig í hús en aðalkeppinautar Gróttu; Fram og Stjarnan, unnu einnig sína leiki og keppnin um að halda sér í deildinni því enn í algleymingi. Lesa meira
 

22.3.2010 Nýjustu úrslit : Grótta - Akureyri: 29 - 26

Grótta tók á móti Akureyri í íþróttamannvirki Seltjarnarness í gær og lauk leiknum með sigri Gróttu 29-26. Með sigrinum komst Grótta aftur yfir Fram í stigafjölda og situr nú sjötta sæti deildarinnar með tíu stig. Fyrri hálfleikur var einkar lipurlega leikinn af heimamönnum. Grótta náði strax forystu og komst meðal annars í 7-1. Lesa meira
 

19.3.2010 Nýjustu úrslit : Haukar - Grótta: 22 - 21

Grótta fór í gær í heimsókn til heiðursmannanna að Ásvöllum í Hafnarfirði. Haukar eru ríkjandi Íslands- og bikarmeistarar og því ljóst að það yrði við rammann reipinn að draga. Grótta var að spila sinn fyrsta leik undir stjórn Geirs Sveinssonar sem tók við stjórnartaumunum liðsins fyrr í vikunni. Haukar byrjuðu betur og höfðu frumkvæði allan fyrri hálfleikinn. Gróttumenn gerðu mikið af tæknilegum mistökum í sókninni og mörg marka Hauka komu eftir hraðaupphlaup.

Lesa meira

 

23.2.2010 Nýjustu úrslit : Grótta - FH: 27 - 30

Gróttumenn þurftu að játa sig sigraða í hörkuleik á Nesinu á fimmtudagskvöldið. Liðið kom mjög einbeitt til leiks og hafði frumkvæðið allan fyrrihálfleikinn eða allt þar til í blálokin þegar aðkomuliðið náði að komast yfir. Staðan í leikhlé var 14-15. Lesa meira
 

16.2.2010 Nýjustu úrslit : Valur - Grótta: 20 - 19

Niðurstaða gærkvöldsins var með allra sárasta móti. Eins marks tap, og það í þriðja skiptið í vetur gegn Valsmönnum. Í þetta sinn var niðurstaðan sárari, þ.e. að með henni var endir bundinn á frekari þáttöku Gróttuliðsins í Eimskipsbikarnum. Lesa meira
 

15.2.2010 Nýjustu úrslit : Grótta - HK: 33 - 20

Meistaraflokkur kvenna hefur leikið tvo leiki í 2. deild kvenna frá því að síðasti pistill var skrifaður. Sunnudaginn 7. febrúar lék liðið gegn botnliði deildarinnar Haukum á Ásvöllum. Fyrir leikinn bjuggust ef til vill flestir við auðveldum leik en í liði Hauka voru reynsluboltar á borð við Hörpu Melsteð, Ingu Fríðu Tryggvadóttur og markvörðinn knáa Vigdísi Sigurðardóttur. Lesa meira
 

9.2.2010 Nýjustu úrslit : Akureyri - Grótta: 33 - 19

Gróttumenn flugu norður í land í dag til þess að spila annan leik ársins. Ljóst var að leikurinn yrði gríðarlega erfiður í Höllinni á Akureyri þar sem stuðningurinn hefur verið með eindæmum í vetur. Bæði lið höfðu tapað síðustu leikjum sínum og Akureyri nokkuð illa í Kaplakrikanum. Lesa meira
 

5.2.2010 Nýjustu úrslit : Grótta - Valur: 26 - 27

Grótta lék á fimmtudagskvöld gegn Völsurum í N1-deildinni í handbolta. Það var greinilegt á liðinum að þau voru að spila sinn fyrsta alvöru leik frá því um miðjan desember því ekki var markaskorið hátt til að byrja með. Eftir 8 mínútur þá hafði Gróttu ekki skorað mark og Valsarar 2-0 yfir. Eftir því sem á leið hálfleikinn náðu okkar strákar forystu og hafði liðið gullið tækifæri til að vera einu marki yfir í hálfleik en fyrrum Grottumaðurinn Hlynur Morthens sá við Antoni Rúnarssyni á vítapunktinum. 13-13 í hálfleik. Lesa meira
 

28.1.2010 Nýjustu úrslit : Grótta - Fjöl/Aft: 33 - 15

Kvennalið Gróttu hefur hafið nýtt ár af miklum krafti. Liðið hefur leikið tvo leiki í deildinni gegn Þrótti og ÍBV. Leikurinn gegn Þrótti vannst með 16 marka mun 30-14 og Grótta bar sigurorð af ÍBV á heimavelli fyrir tíu dögum síðan með þremur mörkum 34-31. Lesa meira
 

14.12.2009 Nýjustu úrslit : Grótta - Víkingur: 23 - 22

Á föstudagskvöld mættust Grótta og Víkingur í lokaleik ársins í 2.deild kvenna. Fyrir leikinn voru liðin með fæst töpuð stig í deildinni og því ljóst að um hörkuleik var að ræða. Fyrir leikinn hafði Grótta unnið alla fimm leiki sína í deildinni en Víkingur tapað einum af fimm fyrstu leikjum sínum. Lesa meira
 

14.12.2009 Nýjustu úrslit : Hk - Grótta: 32 - 22

Á fimmtudagskvöld fóru okkar strákar í Kópavoginn og öttu kappi við HK. Leikurinn fór ágætlega af stað og komust okkar strákar í 3-2, annars var jafnt á öllum tölum. Undir lok hálfleiksins skoruðu HK-ingar fjögur mörk í röð og komust í 15-10. Grótta náði að minnka lítillega muninn fyrir hlé en hálfleiksstaðan var 16-12. Seinni háfleikur var skelfilegur og greinileg þreyta var á mannskapnum. Lesa meira
 

8.12.2009 Nýjustu úrslit : Víkingur - Grótta: 34 - 35

Grótta komst á mánudagskvöld í undanúrslit í Eimskipsbikarnum. Leikið var við Víkinga í Víkinni og þurfu okkar menn að hafa mikið fyrir sigrinum. Eftir herfilega byrjun þar sem Víkingar komust í 9-2 snéru okkar menn við blaðinu og minnkuðu muninn í 13-12 fyrir hálfleik. Í síðari hálfleik var jafnræði með liðunum en um miðjan hálfleikinn komust Víkingar í 23-19 og 24-21. Lesa meira
 

5.12.2009 Nýjustu úrslit : Grótta - Fram: 32 - 29

Á fimmtudagskvöld mætti Grótta liði Fram N1-deildinni. Leikurinn fór fram á Nesinu fyrir framan 550 áhorfendur. Fyrir leikinn hafði Gróttuliðið unnið 3 leiki af seinustu 4 og ekkert annað á boðstólnum en að bæta þeim fjórða við. Leikurinn fór hægt af stað en fljótlega komst Gróttan í 5-1. Eftir því sem leið á hálfleikinn náði Framarar að minnka muninn og í hálfleik var jafnt, 15-15. Lesa meira
 

30.11.2009 Nýjustu úrslit : Grótta - Stjarnan: 25 - 24

Grótta vann góðan sigur á Stjörnunni á fimmtudagskvöld í N1 deild karla. Leikurinn fór 25-24 eftir spennuþrungnar lokasekúndur. Grótta var með yfirhöndina allan leikinn og var staðan í hálfleik 12-9 og þegar seinni hálfleikurinn var hálfnaður var Grótta sex mörkum yfir. Fyrir leikinn hafði liðið ekki innbyrt sigur á heimavelli. Þrátt fyrir að Ægi Hrafn vantaði í liðið, var vörnin sterk í leiknum. Lesa meira
 

23.11.2009 Nýjustu úrslit : Haukar - Grótta: 31-24

Sunnudaginn síðastliðinn fóru Gróttustrákar í heimsókn í Hafnarfjörðinn, nánar tiltekið á Ásvelli og öttu kappi við Hauka. Leikurinn var spennandi framan af en þegar skammt var til leiksloka sigldu Haukastrákar þó fram úr í lokin. Fyrri hálfleikur fór vel á stað og Gróttustrákar komust í 2-1 og leikurinn jafn framan af hálfleiknum og mikil barátta í leikmönnum. Haukamenn náðu mest 4 marka forystu en staðan í hálfleik var 13-11 fyrir Haukum. Lesa meira
 

Útlit síðu:



handbolti4
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innranetinnranet - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.