Nýjustu úrslit
FH - Grótta: 23 - 27
Handbolti - Mfl. kvenna
Meistaraflokkur kvenna lék annan leik sinn á Íslandsmóti kvenna á sunnudag. Leikiđ var gegn FH í Kaplakrika en stúlkurnar voru stađráđnar í ađ fylgja eftir góđum sigurleik gegn sameinuđu liđi Fjölnis/Aftureldingar fyrir viku. Í liđ Gróttu vantađi nokkra öfluga leikmenn en Ásrún Lilja Birgisdóttir var veik og markverđirnir Sóley Halldórsdóttir og Rannveig Smáradóttir áttu ekki heimangengt í ţennan leik.
Gróttustúlkur byrjuđu af miklum krafti og komust í 5-1 í upphafi leiks en ţá tóku heimastúlkur viđ sér og stađan var jöfn fram eftir fyrri hálfleik. Undir lok hálfleiksins náđi Grótta tveggja marka forystu
11-13 en ţađ var einmitt stađan í hálfleik.
Ţađ var allt annađ liđ sem kom til leiks í síđari hálfleik og skoruđu Gróttustúlkur hvert markiđ á fćtur öđru á upphafsmínútum hálfleiksins og lögđu grunninn ađ sigrinum. Á tímabili munađi átta mörkum á liđunum en öflugt liđ FH gafst ekki upp og minnkađi muninn.
Ţćr komust ţó aldrei mjög nálćgt gestunum af Nesinu sem uppskáru fjögurra marka sigur, 23-27.
Leikurinn var nokkuđ kaflaskiptur hjá Gróttu. Inn á milli mjög góđra leikkafla komu slakir kaflar sem urđu ţess valdandi ađ sigurinn var ekki stćrri. Ţó má ekki taka ţađ af heimamönnum í FH ađ ţćr eru međ öflugt liđ og góđa blöndu yngri og eldri leikmanna. Hjá Gróttu átti markvörđurinn Hlíf Reynisdóttir frábćran leik og varđi hvert skotiđ á fćtur öđru, sérstaklega í síđari hálfleik á ţeim kafla sem FH minnkađi muninn. Tinna Laxdal Gautadóttir átti einnig góđan leik og skorađi sjö mörk auk ţess sem Hildur Marín Andrésdóttir óx ásmegin eftir ţví sem líđa tók á síđari hálfleik.
Nćsti leikur Gróttustúlkna er gegn Haukum á Seltjarnarnesi nk. laugardag kl. 14.00. Fréttaritari hvetur alla til ađ mćta á völlinn og sjá framtíđarleikmenn meistaraflokks kvenna hjá félaginu.
Mörk Gróttu:
-Tinna Gautadóttir 7
-Bjarney Bjarnadóttir 7
-Hildur Marín Andrésdóttir 4
-Katrín Tómasdóttir 3
-Sandra Halldórsdóttir 3
-Sigríđur Svala Jónasdóttir 2
-Dagmar Magnadóttir 1
-Agnes Guđmundsdóttir 1
Hlíf Reynisdóttir varđi 18 bolta í markinu

