Landsliðsfólk Gróttu verðlaunað
7 Gróttumenn í æfingahópi U20 ára landsliðs karla !
Geir Sveinsson, landsliðþjálfari U-20 ára landslið karla, hefur valið 7 leikmenn Gróttu í 42 manna æfingahóp. Þeir eru Arnar Þór Ólafsson, Aron Valur Jóhannsson, Árni Benedikt Árnason, Kristján Ingi Kristjánsson, Kristján Orri Jóhannsson, Þorgrímur Þórarinsson og Þráinn Orri Jónsson. Leikmennirnir hafa staðið sig afar vel og verður spennandi að fylgjast með þeim í vetur.
Geir og Magnús Kári með afreksæfingar
Undanfarna tvo mánudaga hafa verið afreksæfingar hjá elstu flokkum handknattleiksdeildar. Mánudaginn 28.nóvember kom Geir Sveinsson fyrrum landsliðsfyrirliði, fyrrum þjálfari Gróttu og núverandi þjálfari U20 ára landsliðs karla og var með æfingu fyrir valdar stúlkur í 3. og 4.flokki kvenna. Farið var yfir varnarleik en Geir Sveinsson var sjálfur gríðarsterkur varnarmaður á sínum tíma.
Lesa meira
Séræfingar og afreksæfingar halda áfram
2.flokkur karla áfram í bikarnum
Ágæt byrjun 2.flokks karla
Þrátt fyrir að tímbilið byrji seint í 2.flokki eru leikmenn liðsins búnir að æfa vel fyrir komandi átök. Undibúningur langur og strangur og loksins eru leikmenn byrjaðir að spila af krafti. 2.flokkur hefur að skipa tvö lið, lið 1 sem spilar í 1.deild og lið 2 sem spilar í 2.deild. Á síðastliðnum tveimur vikum hafa 5 leikir verið spilaðir sem hefur endað með góðum úrslitum.
Afreksæfingar halda áfram fyrir hornamenn
Síðastliðna tvo mánudaga hefur Beló haldið utan um afreksæfingar fyrir okkar efnilegustu hornamenn. Æfingarnar voru mjög vel heppnaðar en Beló fór í ýmis smáatriði sem hornamenn þurfa að hafa í huga. Við höfum fengið hann til að koma og hitta hópana einu sinni til viðbótar næstu tvo mánudaga.
13 Gróttuleikmenn valdir í yngri landslið karla !
Seinustu daga hefur verið valið í öll yngri landslið karla, U16, U18 og U20 ára lið karla. Gróttumenn geta verið stoltir af þessum landsliðum þar sem hvorki fleiri né færri en 13 leikmenn frá Gróttu voru valdir í liðin að þessu sinni! Fjórir leikmenn voru valdir í U20 ára liðið, fimm leikmenn í U18 ára liðið og fjórir leikmenn í U16 ára liðið. Liðin munu æfa í vikunni og um næstu helgi.
Afreksæfingin heppnaðist vel
Síðastliðið mánudagskvöld hófust afreksæfingar handknattleiksdeildar Gróttu en þetta eru fyrstu æfingar þessarar tegundar í vetur. Með afreksæfingunum er ætlunin að hlúa sérstaklega að efnilegustu leikmönnum deildarinnar í elstu flokkum karla og kvenna. Æfingarnar eru í umsjón yfirþjálfara deildarinnar en þeir munu fá í heimsókn gestaþjálfara með reglulegu millibili í vetur. Það er von stjórnarinnar að með þessu fái leikmennirnir og aðrir sem starfa innan deildarinnar nýjar hugmyndir og læri nýjar nálganir í vinnu sinni.
Afreksæfingar - hornamenn
Davíð þjálfar 2.flokk karla og aðstoðar meistaraflokk
Davíð Örn Hlöðversson hefur verið ráðinn þjálfari 2.flokks karla. Enn fremur hefur hann verið ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks og mun því vera Guðfinni Kristmannssyni til halds og trausts í vetur. Davíð mun áfram spila með liðinu.
Flott uppskeruhátíð handknattleiksdeildar að baki
Uppskeruhátíðin í handboltanum fór fram sunnudaginn 22.maí. Vegna mikils fjölda iðkenda var ákveðið að tvískipta hátíðinni. Yngri flokkarnir, 5.flokkur, 6.flokkur, 7.flokkur og 8.flokkur voru í stóra salnum kl. 17:00-18:30 en eldri flokkarnir, 4.flokkur, 3.flokkur og 2.flokkur voru í hátíðarsalnum kl. 19:00-20:30. Ætla má að um 600-700 manns hafi verið á þessum tveimur hátíðum þennan daginn.
Lesa meira
Uppskeruhátíð Handknattleiksdeildar Gróttu 2011
Sunnudaginn 22. maí nk. verður haldin hin árlega uppskeruhátíð Handknattleiksdeildar Gróttu í Íþróttamiðstöð Seltjarnarness. Hátíðin hefst með verðlaunaafhendingu fyrir frammistöðu vetrarins. Eftir verðlaunaafhedingu verður grillveisla. Foreldrar/forráðamenn iðkenda eru vinsamlegast beðnir um að koma með einn pylsu- og pylsubrauðspakka í sameiginlega grillveislu fyrir iðkendur og fjölskyldur þeirra. Deildin mun bjóða upp á meðlæti og drykki. Foreldrar og forráðamenn eru velkomnir. Hópnum verður skipt í tvennt.
4 Gróttumenn í U19 ára landsliði karla
Fyrir helgina var valinn 22 manna úrtakshópur fyrir U19 ára landslið karla. Liðið mun æfa næstu daga og vikur fyrir European Open sem verður haldið í Gautaborg í byrjun júlí. Grótta á fjóra leikmenn í þessum hópi; Árni Benedikt Árnason, Kristján Ingi Kristjánsson, Vilhjálmur Geir Hauksson og Þráinn Orri Jónsson. Grótta óskar öllum þessum leikmönnum hjartanlega til hamingju með valið.

