4.flokkur karla

Lárus

21.6.2010 Handknattleiksdeild : Fjöldi leikmanna á landsliðsæfingum

Undanfarna daga og vikur hefur fjöldi leikmanna frá Gróttu verið á landsliðsæfingum á vegum HSÍ. Grótta átti tvo fulltrúa í U18-ára liði karla sem stóð sig vel í Belgíu, sex fulltrúa í U16-ára liði karla, þrjá í U16-ára liði kvenna og sjö í Handboltaskóla HSÍ. Árni Benedikt Árnason og Þráinn Orri Jónsson voru valdir í U18-ára landslið karla sem fór til Belgíu í lok maí. Þar lék liðið í undankeppni EM en liðið lék gegn heimamönnum í Belgíu, Úkraínu og Króatíu. Lesa meira
 
A-lið íslandsmeistari

22.4.2010 Handknattleiksdeild : 4.flokkur karla Íslandsmeistarar

Um helgina lauk keppni í Íslandsmóti 4.flokks karla og fór úrslitahelgin fram í Strandgötu. A-liðið sigraði FH í úrslitaleik 30-27 og tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn með glæsibrag. B1 sigraði FH 23-19 í leik um 3.sætið og tryggðu sér brons. Frábær endir á vetrinum hjá 4.flokki karla en B2 hafði fyrr í vetur tryggt sér deildarmeistaratitil í 2.deild. Lesa meira
 
4.fl.karla_-_A-lid_deildarmeistari_2010

17.4.2010 Handknattleiksdeild : Þrjú lið leika um Íslandsmeistaratitilinn á sunnudaginn

Í dag, laugardag fóru fram undnaúrslit í 4.flokki karla og kvenna. Grótta átti fjögur lið í þessum úrslitum og munu þrjú þessara liða leika sjálfan úrslitaleikinn á sunnudaginn. Hjá 4.flokki karla léku A-lið og B1 gegn Fram í Strandgötu. B1 tapaði 17-16 eftir hörkuleik og hefðu sannarlega átt skilið að leika úrslitaleikinn á morgun. A-liðið tryggði sér hins vegar sæti í úrsleiknum á morgun með sigri 19-18 í hörkuleik. Hjá 4.flokki kvenna vann A-liðið ÍBV 23-20 og B1-liðið Stjörnuna 23-14. Lesa meira
 
4.fl.kvenna_tvofaldir_deildarmeistarar

16.4.2010 Handknattleiksdeild : Úrslitakeppni 4.flokks um helgina

Um helgina fer fram úrslitakeppni 4.flokks karla og kvenna í A og B-liðum. Grótta á fjögur lið í undanúrslitunum og leika strákarnir í Íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnafirði og stelpurnar í Íþróttahúsinu við Austurbergi í Breiðholti. Við hvetjum áhugasama til að mæta á undanúrslitaleikina á laugardaginn og hvetja framtíðarfólk okkar alla leið í úrslitin. Án efa munu þessir krakkar leika stórt hlutverk í meistaraflokki innan fárra ára. Með því að smella á lesa meira má sjá hvenær leikirnir eru Lesa meira
 
4.fl.karla_-_A-lid_deildarmeistari_2010

26.3.2010 Handknattleiksdeild : 4.fl. karla - Tvöfaldir deildarmeistarar 2010

Um helgina lauk deildarkeppni allra þriggja liða 4.flokks karla og nú er úrslitakeppnin eingöngu eftir. 4.flokkur karla náði þeim frábæra árangri að tryggja sér tvo deildarmeistaratitla um helgina, í A-liðum 1.deild og B-liðum 2.deild. Frábær árangur hjá þessum sterka hóp. Lesa meira
 
4_fl_auglysing_bikar

19.2.2010 Handknattleiksdeild : 4.fl.karla - Undanúrslit í bikarnum í kvöld

Í kvöld leikur 4.flokkur karla í undanúrslitum Eimskipsbikarsins þegar þeir mæta Frömurum. Leikurinn fer fram hérna á Nesinu og hefst kl. 20:30. Það lið sem vinnur leikinn, leikur gegn Aftureldingu í úrslitaleik í Laugardalshöllinni sunnudaginn 28.febrúar nk. Strákarnir þurfa þinn stuðning. Áfram Grótta Lesa meira
 
4.fl. kvenna á Lundaspelen

15.1.2010 Handknattleiksdeild : Lundaspelen - Samantekt

Dagana 26. - 31.desember sl. fór 4.flokkur karla og kvenna á mót í Svíþjóð sem ber heitið Lundaspelen og fer fram í háskólaborginni Lundi. 9 strákar og 17 stelpur fóru út auk fjögurra þjálfara. Þess fyrir utan fóru 6 foreldrar á eigin vegum, til þess eins að fylgjast með börnunum sínum. Lundaspelen er stærsta innanhúsmót í heimi með 8000 þátttakendur á öllum aldri. Leikið er í íþróttahúsum víðsvegar um Lund og nágrenni.

Lesa meira
 
Sölvi

9.1.2010 4.flokkur karla : Æfingaáætlun jan/feb 2010

Á næstu vikum verður mikið um að vera hjá 4.flokki karla, fjölmargir leikir hjá öllum liðum í deild og bikar. Æfingaáætlun frammí miðjan febrúar má því sjá hér. Lesa meira
 
Gróttustrákar í U15

4.1.2010 Handknattleiksdeild : 8 Gróttumenn í U16 landsliði HSÍ

Helgina 2. og 3. janúar kom saman úrtakshópur fyrir U16 ára landslið HSÍ. Þetta er í annað skipti í vetur sem að hópurinn kemur saman og var æft tvisvar sinnum á laugardag og einu sinni á sunnudag. Grótta átti 8 glæsilega fulltrúa í hóp þessara sterkustu leikmanna landsins. Þeir stóðu sig allir gífurlega vel á þessum æfingum og sýndu styrk sinn og kunnáttu. Gróttudrengirnir eru fæddir 1994 og 1995 og leika með 4.flokki karla. Glæsilegur árangur hjá þessum flottu drengjum og óskum við þeim til hamingju með þessa viðurkenningu. Lesa meira
 
Lundaspelen3

30.12.2009 Handknattleiksdeild : Lundaspelen - Stelpurnar í 2.sæti i B-úrslitum

Núna hafa bæði Gróttulidin lokið þátttöku sinni á Lundaspelen. Stelpurnar tóku sig til og lentu í 2.sæti i B-úrslitin, glæsilegur árangur það en eftir framlengdan leik, unnu hollensku stelpurnar á gullmarki. Eftir frekar dapra byrjun i mótinu tóku þær sig sannarlega saman i andlitinu og spiluðu gríðarlega vel i B-úrslitunum. Þær töpuðu gegn þessu sama liði með 10 mörkum í riðlinum en núna sýndu Gróttustelpurnar sitt rétta andlit og börðust eins og ljón. Lesa meira
 
Lundaspelen2

28.12.2009 Handknattleiksdeild : Lundaspelen - Annar keppnisdagur

Núna er annar keppnisdagur á Lundaspelen að kveldi kominn. Leikir dagsins fóru misjafnlega hjá liðunum tveimur. Stelpurnar biðu lægri hlut gegn Elsflether frá Þýskalandi, 18-10 og svo gegn Amager frá Danmörku 16-12. Stelpurnar spila á morgun í B-úrslitum Henstedt-Uhlsburg frá Þýskalandi kl. 10:39 að íslenskum tíma. Strákarnir hins vegar unnu báða sína leiki, fyrst gegn Herrsching frá Þýskalandi 16-11 og síðan gegn Aranes frá Svíþjóð 15-14. Strákarnir skoruðu 4 seinustu mörk leiksins, en staðan var 11-14 fyrir Aranes þegar 10 mínútur voru til leiksloka. Mikill karakter skilaði þessu gríðarlega mikilvægum sigri en með sigrinum komst liðið í A-úrslit. Lesa meira
 
4.fl.kk_Partille08

27.12.2009 Handknattleiksdeild : Lundespelen - Fyrsti keppnisdagur

4.flokkur karla og kvenna i handbolta eru thessa dagana i keppnisferd i Svithjod a moti sem heitir Lundaspelen. Fyrsti kepppnisdagur er nu ad baki en lidin leku hvort tvo leiki. Stelpurnar bidu laegri hlut gegn sterkum lidum, gegn Lundagård 21-12 og gegn Brabrant fra Hollandi 15-5. Drengirnir aftur a moti leku gegn Ankaret fra Svithjod en thvo midur tapadist sa leikur 14-11 eftir ad Grotta hafdi komist i 5-1, I seinni leiknum leku strakarnir gegn Sävehof 1 fra Gautaborg og vannst sa leikur orugglega 23-12. Lesa meira
 
Gróttustrákar í U15

30.10.2009 Handknattleiksdeild : 11 frá Gróttu á U16 ára úrtakshóp

Um helgina fara fram úrtaksæfingar U16 ára landsliði HSÍ. 11 leikmenn 4.fl.karla í Gróttu voru valdir í þennan hóp, en þetta eru allt leikmenn fæddir 1994 og 1995. Það verður því flottur Gróttuhópur á landsliðsæfingum um helgina og óskum við þessum leikmönnum til hamingju með valið. Lesa meira
 
Grotta-FH_4.fl._B1

12.10.2009 Handknattleiksdeild : Góð helgi hjá 4.fl. karla

A, B1 og B2-lið 4 flokks karla spiluðu öll núna á sunnudaginn og unnust allir leikirnir þeirra. A og B2 liðin byrjuðu daginn á tveimur sigrum á ÍR en B1 kláraði svo góðan dag með góðum sigri á FH um kvöldið. A-liðið reið á vaðið um hádegisbilið á sunnudag og leikið var við ÍR. Gróttustrákar tóku strax yfirhöndina í leiknum og náðu strax 4-5 marka forystu en staðan í hálfleik var 13-7 fyrir Gróttustrákum. Lesa meira
 
Grotta-IR

9.10.2009 Handknattleiksdeild : 4.fl. karla fyrsti leikur: Grótta - ÍR

Fyrsti leikur 4.fl. karla A-liðs fer fram á sunnudaginn kl. 13:15 í Íþróttahúsi Seltjarnarness. Liðið vann alla sína leiki í forkeppninni í september og komst þar með í 1.deildina. 4.flokkur ætlar sér stóra hluti á tímabilinu en auk A-liðsins leikur B1 við FH 2 kl. 19:45 og B2 leikur við ÍR kl. 14:30. Leikirnir fara fram á Seltjarnarnesi. Lesa meira
 

Útlit síðu:



fotbolti4
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.