Afreksæfingar og séræfingar næstu daga
Næstkomandi mánudag kl. 20:30-21:40 mun Karl Erlingsson koma í heimsókn til okkar og halda utan um afreksæfingu fyrir elstu leikmenn kvennamegin. Karl er afar reyndur handboltaþjálfari og hefur þjálfað meistaraflokka karla og kvenna auk yngri landsliða Íslands. Kalli mun stýra okkar efnilegustu stúlkum á 70 mínútna handboltaæfingu. Það er vonandi að allar stelpurnar hafi gagn og gaman af. Það er einnig rétt að minna á séræfingar á sunnudaginn en á milli 20-30 krakkar í 6. og 5.flokki karla og kvenna hafa verið að mæta að staðaldri á hvora æfingu.
Séræfingar yngri leikmanna
Markmannshelgi yngri markvarða
Handboltanámskeiðin hefjast á morgun
Fjöldi leikmanna á landsliðsæfingum
Flott uppskeruhátíð handknattleiksdeildar að baki
Uppskeruhátíðin í handboltanum fór fram sunnudaginn 22.maí. Vegna mikils fjölda iðkenda var ákveðið að tvískipta hátíðinni. Yngri flokkarnir, 5.flokkur, 6.flokkur, 7.flokkur og 8.flokkur voru í stóra salnum kl. 17:00-18:30 en eldri flokkarnir, 4.flokkur, 3.flokkur og 2.flokkur voru í hátíðarsalnum kl. 19:00-20:30. Ætla má að um 600-700 manns hafi verið á þessum tveimur hátíðum þennan daginn.
Lesa meira
Uppskeruhátíð Handknattleiksdeildar Gróttu 2011
Sunnudaginn 22. maí nk. verður haldin hin árlega uppskeruhátíð Handknattleiksdeildar Gróttu í Íþróttamiðstöð Seltjarnarness. Hátíðin hefst með verðlaunaafhendingu fyrir frammistöðu vetrarins. Eftir verðlaunaafhedingu verður grillveisla. Foreldrar/forráðamenn iðkenda eru vinsamlegast beðnir um að koma með einn pylsu- og pylsubrauðspakka í sameiginlega grillveislu fyrir iðkendur og fjölskyldur þeirra. Deildin mun bjóða upp á meðlæti og drykki. Foreldrar og forráðamenn eru velkomnir. Hópnum verður skipt í tvennt.
5.flokkur kvenna yngri í 3.sæti
Það var eldhress hópur Gróttustelpna sem lagði í hann til Húsavíkur um hádegisbil þann 8. apríl síðastliðinn. Hópurinn hefur æft vel í vetur og sýnt miklar framfarir og hápunktur vetrarins var Húsavíkurferðin. Farið var með tvö lið frá Gróttu að þessu sinni og ferðatilhögun hljóðaði upp á flug til Akureyrar og svo beint upp í rútu til Húsavíkur. Við vorum vel nestuð fyrir tilstilli Veislunnar.
Lesa meira
Komdu og prófaðu handbolta !
Handboltaæfingar hefjast á mánudaginn
Fjöldi leikmanna á landsliðsæfingum
Uppskeruhátíð Handknattleiksdeildar Gróttu
Foreldrafundur á fimmtudag
Uppskeruhátíðin í handboltanum fór fram í seinustu viku

