7.flokkur kvenna

2

13.11.2011 Handknattleiksdeild : Stelpurnar í 7.flokki kvenna á sínu fyrsta móti í vetur

7. flokkur kvenna í handbolta hefur æft vel frá því að æfingar hófust samhliða skólanum en um 21 stúlka æfir í flokknum. Stelpurnar tóku þátt í Santa Maria móti ÍR á laugardaginn. Grótta sendi 4 lið til keppni og hvert lið spilaði 4-5 leiki og skoruð voru mörg mörk. Stelpurnar fengu í mótslok verðlaunapening frá mótshaldara. Allar stelpurnar fengu að spila mikið og heppnaðist mótið mjög vel.

Lesa meira

 
DSC01931

2.8.2011 Handknattleiksdeild : Handboltanámskeiðin hefjast á morgun

Á morgun, miðvikudag, hefst fyrsta handboltanámskeiðið af þremur í ágúst. Námskeiðin skiptast í tvennt, annars vegar handboltaskólann og hins vegar afrekskólann. Handboltaskólinn er fyrir krakka fædd 2005-2000 og afreksskólinn er fyrir krakka fædd 1999-1996. Einar Rafn Ingimarsson hefur yfirumsjón með námskeiðunum en þjálfarar Gróttu, leikmenn meistaraflokka ásamt gestaþjálfurum munu leiðbeina á námskeiðunum. Nú þegar hafa 50 krakkar skráð sig á námskeiðin. Lesa meira
 
2011_-_Bikarar

31.5.2011 Handknattleiksdeild : Flott uppskeruhátíð handknattleiksdeildar að baki

Uppskeruhátíðin í handboltanum fór fram sunnudaginn 22.maí. Vegna mikils fjölda iðkenda var ákveðið að tvískipta hátíðinni. Yngri flokkarnir, 5.flokkur, 6.flokkur, 7.flokkur og 8.flokkur voru í stóra salnum kl. 17:00-18:30 en eldri flokkarnir, 4.flokkur, 3.flokkur og 2.flokkur voru í hátíðarsalnum kl. 19:00-20:30. Ætla má að um 600-700 manns hafi verið á þessum tveimur hátíðum þennan daginn.

Lesa meira
 
Uppskeruhátíð

17.5.2011 Handknattleiksdeild : Uppskeruhátíð Handknattleiksdeildar Gróttu 2011

Sunnudaginn 22. maí nk. verður haldin hin árlega uppskeruhátíð Handknattleiksdeildar Gróttu í Íþróttamiðstöð Seltjarnarness. Hátíðin hefst með verðlaunaafhendingu fyrir frammistöðu vetrarins. Eftir verðlaunaafhedingu verður grillveisla. Foreldrar/forráðamenn iðkenda eru vinsamlegast beðnir um að koma með einn pylsu- og pylsubrauðspakka í sameiginlega grillveislu fyrir iðkendur og fjölskyldur þeirra. Deildin mun bjóða upp á meðlæti og drykki. Foreldrar og forráðamenn eru velkomnir. Hópnum verður skipt í tvennt.

Lesa meira

 
7.flokkur kvenna - Selfossmót 1

6.4.2011 Handknattleiksdeild : Landsbankamót í 7.flokki kvenna á Selfossi

Um helgina var fyrsta keppnisferðin út á land hjá 7. flokki í handbolta. Mikill spenningur var fyrir ferðinni þar sem krakkarnir eru búnir að bíða frá því í haust að fara að gista. Grótta var með 7 lið í mótinu og hvert lið keppti 6 leiki. Stelpurnar stóðu sig mjög vel og flestar bættu sig með hverjum leiknum.

Lesa meira

 
HM_i_handbolta_2011

14.1.2011 Handknattleiksdeild : Komdu og prófaðu handbolta !

Í tilefni HM í handbolta sem stendur yfir 13.janúar ? 30.janúar er öllum nýjum iðkendum á aldrinum 6 til 14 ára boðið frítt á handboltaæfingar hjá Gróttu. Handknattleiksdeild Gróttu er ein stærsta handknattleiksdeild landsins og hefur státað af framúrskarandi árangri í yngri flokkum mörg undanfarin ár enda hefur deildin að skipa vel menntaða og hæfa þjálfara í öllum stöðum. Við hvetjum alla, stráka og stelpur að koma og prófa handboltaæfingu. Lesa meira
 
7.flokkur kvenna - Mót

30.11.2010 Handknattleiksdeild : Gróttustelpur á 7.flokks móti

Gróttustelpur í 7. flokki kvenna tóku þátt í móti helgina 6. -7. nóvember. Mótið var haldið af Haukum í Hafnarfirði og  Grótta var með flest lið á mótinu eða alls 6 lið. Hvert lið keppti þrjá til fimm leiki. Stelpurnar stóðu sig mjög vel og hafa greinilega verið duglegar að æfa sig í vetur. Sumar voru að keppa í fyrsta sinn en aðrar hafa keppt nokkrum sinnum áður.

Lesa meira

 
8.flokkur kvenna - TM mót4

21.8.2010 Handknattleiksdeild : Handboltaæfingar hefjast á mánudaginn

Mánudaginn 23.ágúst hefjast handboltaæfingar hjá yngri flokkum Gróttu eftir sumarfrí. Æfingatöfluna má sjá hérna og upplýsingar um þjálfara má sjá hérna. Handknattleiksdeild Gróttu er ein stærsta deild landsins með rúmlega 380 iðkendur frá 6 ára aldri og upp í tvítugt. Deildin er einkar stolt af því að þjálfarar yngstu flokkanna eru allir íþróttafræðingar og þjálfarar eldri flokkanna hafa mikla og góða reynslu af þjálfun. Lesa meira
 
2009 - 8.fl.karla

25.5.2010 Handknattleiksdeild : Uppskeruhátíð Handknattleiksdeildar Gróttu

Mánudaginn 31. maí, haldin hin árlega uppskeruhátíð Handknattleiksdeildar Gróttu í Íþróttamiðstöð Seltjarnarness. Dagskráin hefst með verðlaunafhendingu en veitt verða verðlaun fyrir frammistöðu vetrarins í öllum yngri flokkum félagsins. Uppskeruhátíðin verður tvískipt að þessu sinni, yngstu flokkarnir fyrst og síðan eldri flokkarnir. Lesa meira
 
Kiwanismot_Hauka_jan10_(Large)

3.1.2010 Handknattleiksdeild : Gróttustelpur fjölmenntu á Kiwanismót

Grótta sendi sex lið handboltastúlkna í 7. flokki á Kiwanismót Hauka í Hafnarfirði í byrjun árs. Stúlkurnar spiluðu þrjá leiki hvert lið og leikgleðin var í fyrirrúmi. Þær voru leystar út með gjöfum frá hafnfirskum Kiwanismönnum. Stelpurnar í 7.flokki kvenna hafa æft vel í vetur undir handleiðslu Hildigunnar Hilmarsdóttur og hafa tekið miklum framförum. Lesa meira
 
mynd_306

15.12.2009 Handknattleiksdeild : Jóla-handboltaskóli Gróttu hefst í næstu viku

Jóla-handboltaskóli Gróttu verður starfræktur í 5 daga um jólin. Í skólanum verður börnunum skipt niður eftir aldri. Með þessu móti ætlum við að reyna að koma til móts við þarfir hvers aldurs fyrir sig. Farið verður í grunnatriði fyrir yngsta aldurshópinn en eftir því sem krakkarnir eru eldri, því flóknari verða æfingarnar. Skólinn er fyrir krakka sem eru í 1.- 6.bekk (fædd 2003-1998). Lesa meira
 
Grotta

9.11.2009 Handknattleiksdeild : Gróttustelpur öflugar í Hafnarfirði

Grótta sendi sex lið á Hafnarfjarðarmótið í 7. flokki kvenna laugardaginn 7. nóvember. Þrjú lið voru á eldra ári og jafnmörg á því yngra. Allir leikir fóru fram á Ásvöllum, hvert lið lék fjóra leiki. Eftir því var tekið að stelpurnar sóttu jafnt og þétt í sig veðrið þegar leið á mótið. Æfingar hafa verið vel sóttar í haust og góður andi er hjá stelpunum. Lesa meira
 

30.9.2009 7.flokkur kvenna : Mótin í 7.fl. kvenna

Í 7.flokki kvenna eru haldin 3 mót og eru þau eftirfarandi:

                      

Helgin 06.-08. nóvember - Umsjón Haukar
Helgin 05.-07. febrúar - Umsjón HK
Helgin 16.-18. apríl - Umsjón Víkingur

Lesa meira

 
Uppskeruhátíð

18.5.2009 Handknattleiksdeild : Uppskeruhátíð Handboltans

Uppskeruhátíð Unglingaráðs Handboltans fyrir alla yngri flokka verður haldin þriðjudaginn 19.maí nk. kl. 17:00 í stóra salnum. Að þessu sinni ætlum unglingaráðið að biðja foreldra iðkenda að koma með veitingarnar en Grótta mun sjá um gos og kaffi.

Lesa meira

 

30.10.2008 7.flokkur kvenna : Liðin í 7.flokks kvenna mótinu 7.-9.nóvember

Þetta eru liðin í 7. flokki kvenna í mótinu sem verður haldið 7-9 nóvember. Þau má sjá ef smellt er á meira. Lesa meira
 

Útlit síðu:



fotbolti2
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónvefumsjón - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.