Unglingaflokkur karla

3.fl.karla_-_Grotta_-_Valur_1

6.2.2012 Handknattleiksdeild : Naumt tap gegn Val á Hliðarenda

Grótta sótti Val heim á Hlíðarenda í 3. flokki karla og mátti búast við hörkuleik þessara liða þó svo að Grótta hafi unnið fyrri leikinn með 12 mörkum fyrr í vetur. Byrjun Gróttu í leiknum var ekki nógu góð og fljótlega lentu þeir 6 mörkum undir eftir 8 mínútur og Gróttuáhorfendur minntust byrjunarinnar á móti Selfossi fyrr í mánuðinum og vonaði að sú saga endurtæki sig ekki í þessum leik. Lesa meira
 
3.fl.karla_-_Grotta_-_Valur_3

30.1.2012 Handknattleiksdeild : 3.fl. karla féll úr bikarnum

Strákarnir í 3 flokki karla fóru austur fyrir fjall á miðvikudaginn til að spila við Selfoss í 8 liða úrslitum bikarkeppninnar. Búist var við spennandi leik þar sem Selfoss var í efsta sæti deildarinnar og Grótta í 4. sæti en það varð því miður ekki raunin. Gróttuliðið mætti ekki til leiks og voru lélegir frá fyrstu mínútu og áður en þeir vissu af lentu þeir strax 3-0 undir. Selfoss liðið spilaði sinn leik sem allir þekkja en Gróttu strákarnir réðu ekkert við þá í þessum leik og Selfoss leiddi með sjö mörkum í hálfleik, 14-7.

Lesa meira

 
Jon_Ingvar_vs_Fram_2

24.1.2012 Handknattleiksdeild : Leikið tvívegis gegn Fram á stuttum tíma

Grótta 2 í 3.flokki karla lék á dögunum á stuttum tíma tvívegis gegn Fram, fyrri leikurinn gegn Fram 1 í bikarnum og síðan seinni leikurinn gegn Fram 2 í deildinni. Eins og áður sagði lék liðið í Eimskipsbikarkeppni HSÍ gegn Fram 1 en leikurinn var í 8-liða úrslitum og leikið var fyrr í janúar. Andstæðingarnir voru ekki af slakara taginu eða Fram, sem eru ríkjandi Íslandsmeistarar í 3. flokki karla.

Lesa meira
 
3.fl._karla_-_Grotta_Valur

16.1.2012 Handknattleiksdeild : Spennandi sigur gegn sterkum Safamýrarpiltum

Grótta og Fram mættust í Íslandsmótinu í 3.flokki karla á laugardaginn og reiknað var með hörkuleik þessara liða. Staða liðanna í deildinni var svipuð og hafa leikir þessara liða undanfarin ár verið spennandi en Framarar eru ríkjandi Íslandsmeistarar 3 flokks karla. Leikurinn fór rólega af stað en varnir liðanna voru fínar og markvarslan sæmileg. Það komust ekki mörg skot á markið fyrstu mínúturnar og eftir 10 mín var staðan 5-3 fyrir Gróttu.

Lesa meira

 
Fundur með Viðari Halldórs 2

10.1.2012 Handknattleiksdeild : Viðar Halldórs í heimsókn hjá 3.flokki karla

Á mánudagskvöld hitti Viðar Halldórsson, íþróttafélagsfræðingur, alla leikmenn 3. flokks karla í handknattleik á fundi sem fjallaði um markmiðssetningu. Viðar fór yfir gildi markmiðssetningar og kenndi drengjunum hvernig þeir geta sett sér raunhæf og krefjandi markmið. Fundurinn sem stóð í rúma klukkustund var afar fróðlegur og hlustuðu drengirnir af mikilli athygli á það sem Viðar hafði fram að færa.

Lesa meira
 
3.fl._karla_-_Grotta_Valur_Helgi

9.1.2012 Handknattleiksdeild : 3.fl. karla - Sigur í Garðabæ

Íslandsmótið í 3 flokki karla byrjaði aftur eftir jólafrí með leik Stjörnunnar og Gróttu á laugardaginn. Fyrir leikinn var Grótta í 5. sæti deildarinnar með 7 stig og gat farið upp í þriðja sæti með sigri en Stjarnan var í 9. sæti með 3 stig. Leikurinn byrjaði rólega og var hægur fram af og eftir 15 mín var staðan 9-8 fyrir Stjörnuna. Lesa meira
 
3.fl._karla_-_Grotta_Valur_lidid

19.12.2011 Handknattleiksdeild : Tvö Gróttu lið komin í 8-liða úrslit bikarkeppninnar

Grótta 1 í 3.flokki karla spilaði við ÍBV í 16-liða úrslitum bikarsins á föstudaginn og mátti búast við spennandi leik þar sem bæði lið eru að spila í efstu deild Íslandsmótsins. Spennan varð engin þegar á hólminn var komið þar sem Gróttu liðið mætti vel stemmt og undirbúið til leiks. Eftir 7 mínútur var staðan 4-1 og eftir 16 mínútur 9-3. Grótta leiddi í hálfleik 18-5 og leikurinn eiginlega búinn. Lesa meira
 
Vilhjálmur Geir gegn ÍR

16.12.2011 Handknattleiksdeild : Ólafur Ægir og Vilhjálmur Geir í lokahóp U18 karla

U-18 ára landslið karla var valið nú á dögunum. Liðið æfir fyrir jól og heldur svo út til Þýskalands á annan í jólum og tekur þátt í Viktors cup. Að þessu sinni eru tveir leikmenn Gróttu valdir í þetta verkefni, það eru þeir Vilhjálmur Geir Hauksson og Ólafur Ægir Ólafsson. Grótta óskar þessum tveimur landsliðsmönnum sínum til hamingju með valið í þennan 15 manna hóp sem var valinn að þessu sinni. Lesa meira
 
Geir Sveins - afreksæfing 2

9.12.2011 Handknattleiksdeild : Geir og Magnús Kári með afreksæfingar

Undanfarna tvo mánudaga hafa verið afreksæfingar hjá elstu flokkum handknattleiksdeildar. Mánudaginn 28.nóvember kom Geir Sveinsson fyrrum landsliðsfyrirliði, fyrrum þjálfari Gróttu og núverandi þjálfari U20 ára landsliðs karla og var með æfingu fyrir valdar stúlkur í 3. og 4.flokki kvenna. Farið var yfir varnarleik en Geir Sveinsson var sjálfur gríðarsterkur varnarmaður á sínum tíma.

Lesa meira
 
Andri_Geir_gegn_KR

5.12.2011 Handknattleiksdeild : Þrír sigurleikir í röð hjá B-liði 3.flokks karla

Undanfarnar vikur hafa verið viðburðaríkar hjá 3.flokki karla og margir leikir spilaðir. A-liðið lék laugardaginn 19.nóvember gegn Selfyssingum og B-liðið lék á sama tíma þrjá leiki, tvo í deildinni og einn í bikarnum. Það er skemmst frá því að segja að A-liðið beið lægri hlut gegn sterkum Selfyssingum en B-liðið vann Selfyssinga, Þróttara og Reykjanesmenn. Umfjöllun um þessa leiki má sjá ef smellt er á lesa meira. Lesa meira
 
Þráinn Orri

2.12.2011 Handknattleiksdeild : Séræfingar og afreksæfingar halda áfram

Séræfingarnar halda áfram núna á sunnudaginn en Kári Garðarsson yfirþjálfari mun fara yfir skot og gabbhreyfingar. Horna- og línumenn verða eru kl. 10:00 og skyttur og miðjumenn kl. 11:00. Á mánudaginn mun Magnús Kári Jónsson koma í heimsókn til okkar og halda utan um afreksæfingu fyrir elstu leikmenn karlamegin. Lesa meira
 
3.fl._karla_-_Grotta_Valur

28.11.2011 Handknattleiksdeild : 3.fl. karla - Tap í Firðinum

Grótta sótti Haukana heim í Fjörðinn þann 27. nóvember; Grótta var í 3 sæti með 7 stig og Haukar í neðsta sætinu með 2 stig bæði eftir 5 leiki. Spurning hvort stigataflan hafi gert Gróttu strákana sigurvissa fyrir leikinn og því þeir mættu ekki nógu einbeittir í þennan leik. Lesa meira
 
Grotta_-_UMFA_3.fl._karla

13.11.2011 Handknattleiksdeild : Svekkjandi jafntefli í 3.flokki karla

Grótta og Afturelding mættust á Nesinu laugardaginn 12 nóv, tvö lið jöfn að getu þannig að reiknað var með spennandi leik. Grótta var búið að vinna sína fyrstu þrjá leiki en Afturelding búið að vinna tvo og tapa einum.  Afturelding spilaði til úrslita um Íslandsmeistaratitilin í 3.flokki karla síðastliðið vor og mikil spenna var því fyrir þessum leik.

Lesa meira
 
Grotta_2_-_FH_3.fl._karla_Andri_Geir

9.11.2011 Handknattleiksdeild : Skin og skúrir í 3.flokki karla

Bæði liðin í 3.flokki karla voru í eldlínunni fyrir rúmlega viku. B-liðið lék gegn sterku liði FH og A lið 3. flokks karla lék á heimavelli gegn Fjölni laugardaginn 29. september. Nokkrum dögum áður hafði liðið leikið gegn Val og unnið þann leik nokkuð örugglega. Lið Fjölnis komst nokkuð óvænt í efstu deild í forkeppnum í haust. Lesa meira
 
Afreksæfing - Villi Geir

4.11.2011 Handknattleiksdeild : Afreksæfingar halda áfram fyrir hornamenn

Síðastliðna tvo mánudaga hefur Beló haldið utan um afreksæfingar fyrir okkar efnilegustu hornamenn. Æfingarnar voru mjög vel heppnaðar en Beló fór í ýmis smáatriði sem hornamenn þurfa að hafa í huga. Við höfum fengið hann til að koma og hitta hópana einu sinni til viðbótar næstu tvo mánudaga.

Lesa meira

 

Útlit síðu:



handbolti4
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.