Unglingaflokkur kvenna

Kalli_Erlings

27.1.2012 Handknattleiksdeild : Afreksæfingar og séræfingar næstu daga

Næstkomandi mánudag kl. 20:30-21:40 mun Karl Erlingsson koma í heimsókn til okkar og halda utan um afreksæfingu fyrir elstu leikmenn kvennamegin. Karl er afar reyndur handboltaþjálfari og hefur þjálfað meistaraflokka karla og kvenna auk yngri landsliða Íslands. Kalli mun stýra okkar efnilegustu stúlkum á 70 mínútna handboltaæfingu. Það er vonandi að allar stelpurnar hafi gagn og gaman af. Það er einnig rétt að minna á séræfingar á sunnudaginn en á milli 20-30 krakkar í 6. og 5.flokki karla og kvenna hafa verið að mæta að staðaldri á hvora æfingu.

Lesa meira

 
Keppni fyrir Íslands hönd

30.12.2011 Aðalstjórn : Landsliðsfólk Gróttu verðlaunað

Meðal þeirra viðburða sem fóru fram á kjöri Íþróttamanns Gróttu í gærkvöldi var afhending viðurkenningar fyrir að keppa í fyrsta skipti fyrir Íslands hönd. Að þessu sinni voru það 7 einstaklingar sem léku sína fyrstu landsleiki á árinu og var þeim veittur verðlaun fyrir það afrek. Lesa meira
 
Grotta-Haukar_-_Soley

14.12.2011 Handknattleiksdeild : Grótta með 6 stelpur í U-18 ára landsliði kvenna !

Valið hefur verið U18 ára landslið kvenna og á Grótta sex leikmenn í hópnum. Það eru þær Ásgerður Dúa Jóhannesdóttir, Auður Ásta Baldursdóttir, Eva Björk Davíðsdóttir, Lovísa Rós Jóhannsdóttir, Sigrún Birna Arnardóttir og Sóley Arnarsdóttir. Þessar stelpur hafa staðið sig gríðarlega vel í vetur ásamt sínum félögum í 3.flokki kvenna og hafa nú í annað skipti í vetur verið valdar til æfinga með landsliðinu.

Lesa meira

 
Geir Sveins - afreksæfing 2

9.12.2011 Handknattleiksdeild : Geir og Magnús Kári með afreksæfingar

Undanfarna tvo mánudaga hafa verið afreksæfingar hjá elstu flokkum handknattleiksdeildar. Mánudaginn 28.nóvember kom Geir Sveinsson fyrrum landsliðsfyrirliði, fyrrum þjálfari Gróttu og núverandi þjálfari U20 ára landsliðs karla og var með æfingu fyrir valdar stúlkur í 3. og 4.flokki kvenna. Farið var yfir varnarleik en Geir Sveinsson var sjálfur gríðarsterkur varnarmaður á sínum tíma.

Lesa meira
 
Geir Sveinsson

26.11.2011 Handknattleiksdeild : Afreksæfingar halda áfram - varnarleikur

Afreksæfingarnar sem hófust í byrjun október halda áfram nk. mánudag. Þá mun Geir Sveinsson, fyrrverandi landsliðsfyrirliði Íslands og fyrrverandi þjálfari mfl karla í Gróttu, halda utan um æfingu þar sem áherslan verður lögð á varnarleik. Á æfingarnar eru boðaðar okkar efnilegustu leikmenn úr elstu flokkum kvennamegin.

Lesa meira
 
Afreksæfing - Villi Geir

4.11.2011 Handknattleiksdeild : Afreksæfingar halda áfram fyrir hornamenn

Síðastliðna tvo mánudaga hefur Beló haldið utan um afreksæfingar fyrir okkar efnilegustu hornamenn. Æfingarnar voru mjög vel heppnaðar en Beló fór í ýmis smáatriði sem hornamenn þurfa að hafa í huga. Við höfum fengið hann til að koma og hitta hópana einu sinni til viðbótar næstu tvo mánudaga.

Lesa meira

 
Grotta_-_Afturelding_3.fl._kvenna

28.10.2011 Handknattleiksdeild : Sigrar hjá báðum liðum í 3.flokki kvenna

Fyrsti leikur vetrarins hjá Gróttu 2 í 3. flokki kvenna var gegn FH 2 á miðvikudagskvöld. Jafnræði var með liðunum til að byrja með en Grótta þó alltaf skrefinu á undan. FH stúlkur spiluðu langar sóknir og leikmenn Gróttu voru óþolinmóðir og spiluðu stuttar sóknir og gerðu mikið af mistökum sóknarlega til að byrja með. Lesa meira
 
Afreksæfingar 24.okt 2

26.10.2011 Handknattleiksdeild : Afreksæfingin heppnaðist vel

Síðastliðið mánudagskvöld hófust afreksæfingar handknattleiksdeildar Gróttu en þetta eru fyrstu æfingar þessarar tegundar í vetur. Með afreksæfingunum er ætlunin að hlúa sérstaklega að efnilegustu leikmönnum deildarinnar í elstu flokkum karla og kvenna. Æfingarnar eru í umsjón yfirþjálfara deildarinnar en þeir munu fá í heimsókn gestaþjálfara með reglulegu millibili í vetur. Það er von stjórnarinnar að með þessu fái leikmennirnir og aðrir sem starfa innan deildarinnar nýjar hugmyndir og læri nýjar nálganir í vinnu sinni.

Lesa meira

 
Grótta - ÍR Dúa

24.10.2011 Handknattleiksdeild : 11 Gróttuleikmenn valdir í yngri landslið kvenna !

Í seinustu viku var valið í öll yngri landsliðs kvenna; U16, U18 og U-20 ára landslið kvenna sem æfðu um helgina. Grótta átti hvorki fleiri né færri en 11 leikmenn í þessum hópum sem er glæsilegt. Þetta eru leikmennirnir; Hugrún Lena Hansdóttir og Rebekka Guðmundsdóttir í U20, Auður Ásta Baldursdóttir, Ásgerður Dúa Jóhannesdóttir, Eva Björk Davíðsdóttir, Lovísa Rós Jóhannsdóttir, Sigrún Birna Arnardóttir og Sóley Arnarsdóttir í U18 og Elín Jóna Þorsteinsdóttir, Margrét Karen Jónsdóttir og Rúna Eybjörg Sigtryggsdóttir í U16.

Lesa meira

 
Belo_a_flugi

22.10.2011 Handknattleiksdeild : Afreksæfingar - hornamenn

Í vetur mun handknattleiksdeild Gróttu kynna nýjung sem eru afreksæfingar eldri flokka. Afreksæfingarnar verða undir stjórn gestaþjálfara sem fengnir verða til félagsins í ákveðinn tíma. Næstu tvo mánudaga mun Zoltán Belányi halda utan um afreksæfingar fyrir hornamenn. Beló, sem lék á sínum ferli þrjú tímabil með Gróttu, hefur gríðarlega reynslu sem leikmaður og er það von okkar að hann miðli þeirri reynslu til okkar efnilegustu leikmanna. Lesa meira
 
Lovisa_FH_-_Grotta

21.10.2011 Handknattleiksdeild : 3.fl. kvenna byrjar tímabilið af krafti

Íslandsmótið hófst síðastliðinn miðvikudag hjá A-liði 3.flokks kvenna en þær leika í 1.deild í vetur. Leikið var við FH í Kaplakrika og byrjuðu Gróttustelpurnar mjög vel í leiknum. Þær komust fljótlega í 5-0 og var staðan í hálfleik 17-13 Gróttu í vil. Í upphafi síðari hálfleiks juku stelpurnar forskotið upp í 8 mörk. Lesa meira
 
Villi_domari

11.10.2011 Handknattleiksdeild : Fjölmenni á dómaranámskeiði

Það voru rúmlega 50 ungmenni sem mættu í hátíðarsal Gróttu til að sitja A-stigs dómaranámskeið HSÍ sl. mánudagskvöld. Það voru leikmenn 4. flokks karla og kvenna og af eldra ári 3. flokks karla og kvenna sem sátu námskeiðið. Mætingin var mjög góð úr þessum árgöngum en um 90% allra sem æfa á þessum aldri mættu á námskeiðið.

Lesa meira

 
4.fl.karla_-_forkeppni_-_Kari_tjalfari

29.6.2011 Handknattleiksdeild : Kári og Mummi með 3.flokkana

Handknattleiksdeild Gróttu hefur gengið frá ráðningu þjálfara á 3.flokk karla og 3.flokk kvenna. Kári Garðarsson mun þjálfa 3.flokk karla á næsta leiktímabili og Guðmundur Árni Sigfússon verður með 3.flokk kvenna. Enn fremur verður Ómar Örn Jónsson þjálfari 3.flokks kvenna og verður Mumma innan handar. Stjórn deildarinnar er gríðaránægð með að ná samningum við þessa öflugu þjálfara. Lesa meira
 
2011_-_Bikarar

31.5.2011 Handknattleiksdeild : Flott uppskeruhátíð handknattleiksdeildar að baki

Uppskeruhátíðin í handboltanum fór fram sunnudaginn 22.maí. Vegna mikils fjölda iðkenda var ákveðið að tvískipta hátíðinni. Yngri flokkarnir, 5.flokkur, 6.flokkur, 7.flokkur og 8.flokkur voru í stóra salnum kl. 17:00-18:30 en eldri flokkarnir, 4.flokkur, 3.flokkur og 2.flokkur voru í hátíðarsalnum kl. 19:00-20:30. Ætla má að um 600-700 manns hafi verið á þessum tveimur hátíðum þennan daginn.

Lesa meira
 
Uppskeruhátíð

17.5.2011 Handknattleiksdeild : Uppskeruhátíð Handknattleiksdeildar Gróttu 2011

Sunnudaginn 22. maí nk. verður haldin hin árlega uppskeruhátíð Handknattleiksdeildar Gróttu í Íþróttamiðstöð Seltjarnarness. Hátíðin hefst með verðlaunaafhendingu fyrir frammistöðu vetrarins. Eftir verðlaunaafhedingu verður grillveisla. Foreldrar/forráðamenn iðkenda eru vinsamlegast beðnir um að koma með einn pylsu- og pylsubrauðspakka í sameiginlega grillveislu fyrir iðkendur og fjölskyldur þeirra. Deildin mun bjóða upp á meðlæti og drykki. Foreldrar og forráðamenn eru velkomnir. Hópnum verður skipt í tvennt.

Lesa meira

 

Útlit síðu:



handbolti3
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innranetinnranet - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.