Grótta áfram í bikarnum - dregið á morgun
Grótta er komin í 32-liða úrslit Borgunarbikarsins eftir 2-1 sigur á Stál-úlfi í gærkvöldi. Okkar menn sýndu þó engar sparihliðar í gær og lentu meðal annars undir gegn 4. deildarliðinu. Allt hafðist þetta nú að lokum og spennandi að vita hverjir mótherjarnir verða í næstu umferð. Á síðustu 10 árum hefur Grótta fjórum sinnum mætt úrvalsdeildarliði en á Facebook-svæði Gróttu er nú könnun um óskamótherja stuðningsmanna. Hér að neðan má einnig sjá skemmtilega upprifjun frá eftirminnilegum bikarleikjum síðari ára. UPPFÆRT: dregið var í hádeginu og fékk Grótta heimaleik á móti Hetti þann 29. maí!
Adda framlengir hjá Gróttu
|
Borgunarbikarinn: Stál-Úlfur - Grótta í kvöld
|
Seinasta mót vetrarins hjá 5.flokki karla
|





Eftir svekkelsið í Breiðholtinu á föstudag er strax komið að næsta leik Gróttuliðsins, nú í annarri umferð bikarkeppninnar. Andstæðingur kvöldsins er lið Stál-Úlfs sem var stofnað af þekktum litháískum íþróttamönnum á Íslandi og er með lið í bæði fótbolta og körfubolta. Stál-úlfur hefur leikið í 3. deildinni tvö síðustu ár og er að mestu leyti skipað erlendum leikmönnum. Flautað verður til leiks kl. 19:00 og fer leikurinn fram á gervigrasinu aftan við knatthöllina Kórinn í Kópavogi.
Helgina 26. – 28.apríl fór fram seinasta íslandsmótið fram hjá eldra árinu í 5.flokki drengja (f. 1999). Mótið var haldið af FH og fór fram á Kaplakrika og Íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði. Eins og áður í vetur tefldi Grótta fram tveimur liðum í mótinu, Gróttu 1 sem lék á meðal þeirra bestu í 1.deildinni og síðan Gróttu 2 sem lék í 4.deild A.








