Grótta - HK á morgun kl. 20:00
HK-ingar koma í heimsókn á Gróttuvöll á þriðjudaginn kl. 20:00 og er það 11. leikur sumarsins og þar með síðasti leikur fyrri umferðar. Eins og alþjóð veit gerðu Gróttumenn góða ferð í Breiðholtið á fimmtudaginn og sóttu 3 rándýr stig í hendur Leiknismanna. HK-ingar hafa nú náð þremur jafnteflum í röð eftir hörmulega byrjun en eru þó enn á botninum með 4 stig.
Sömu lögmál gilda nú og á móti Leikni. Með sigri getaokkar menn slitið sig hressilega frá botninum og haldið í við liðin í efri hlutanum. Nái HK hins vegar að vinna munu þeir komast á skrið og nálgast okkur í töflunni.
Leikir Gróttu og HK á síðasta tímabili voru báðir afar spennandi. Í fyrri leiknum á Gróttuvelli komst HK yfir en varamaðurinn Dan Howell jafnaði metinn í seinni hálfleik. Með ótrúlegum klaufagangi fékk Gróttuliðið á sig mark og 2-1 sigur HK staðreynd. www.grottasport.is/frettir/nr/1965
Seinni leikurinn á Kópavogsvelli var líka fjörugur. Heimamenn komust yfir en Dan og Sölvi komu Gróttu yfir með laglegum mörkum. HK fékk ódýrt víti í lokin í 2-2 jafntefli niðurstaðan. www.grottasport.is/knattspyrnudeild/frettir/nr/2046
Aðeins góðar fréttir berast frá leikmannahópi Gróttu þessa dagana. Jón Kári er laus úr gipsinu og Ólafur Páll Johnson&Kaaber er mættur til æfinga eftir vetursetu í Kaupmannahöfn. Búast má við svipuðu byrjunarliði og í síðasta leik.
Fyrir mistök voru Gróttuborgarar auglýstir fyrir síðasta leik og biðjumst við velvirðingar á því. Á þriðjudaginn er klárt að grillið verður sjóðandi um 19:00 verða Gróttuborgararnir margfrægu á boðstólnum. Um að gera að mæta snemma á völlinn og háma í sig eins og einn hamborgara og svellkalt kók með.
Þrátt fyrir tap á móti ÍA hefur heimavöllurinn verið að koma feykilega sterkur inn hjá Gróttunni. Áhorfendafjöldinn hefur aukist leik frá leik og stemningnin í stúkunni oft til fyrirmyndar. Leiknis- og HK-leikirnir eru tveir af mikilvægustu leikjum sumarsins. Góður sigur vannst á Leikni og nú skulum við öll taka höndum saman og styðja strákana áfram í leiknum á móti HK á þriðjudaginn. Með sigri verður Grótta í frábærum málum!
Allir á völlinn! - Mætum í bláu!
ÁFRAM GRÓTTA!















