7.flokkur kvenna á Selfossi

7.fl. kvenna á Selfossmóti

7.flokkur kvenna í handknattleik tók þátt í Landsbankamóti Selfyssinga helgina 13.-14. apríl sl. Grótta sendi fimm lið til leiks enda fjölmennur hópur sem æfir. Öll lið kepptu þrjá leiki á föstudeginum og þrjá leiki á laugardeginum. Stelpurnar stóðu sig mjög vel og sumir skoruðu sín fyrstu mörk í keppni.

Á föstudagskvöldinu var kvöldvaka og þá var töframaður að skemmta. Júlía Rós í Gróttu var svo heppin að vera valin til að aðstoða töframanninn. Í lokin var ball þar sem dansað var á fram eftir kvöldi. Ferðinni lauk svo með því að fara í sundlaugina á Selfossi þar sem ein skemmtilegasta rennibraut landsins er samkvæmt stelpunum.

  • Á döfinni

  • Grótta TV

left direction
right direction