Áframhaldandi samstarf Veislunnar og knattspyrnudeildar
Knattspyrnudeild Gróttu og Veislan veitingaeldhús undirrituðu í vikunni samning um áframhaldandi samstarf. Veislan hefur verið einn dyggast stuðningsaðili Gróttu í gegnum tíðina og endurspeglar þessi samningur velvilja fyrirtækisins í garð félagsins. Bjarni Óli Haraldsson og Ísak Runólfsson, eigendur Veislunnar, mættu af því tilefni prúðbúnir upp í vallarhús og skrifuðu undir ásamt Hilmari Sigurðssyni formanni knattspyrnudeildar.
Fyrirtækin á Nesinu eru því miður ekki mörg og oft grunnt á stuðningsaðilium fyrir starf Gróttu. Sem betur fer eru fyrirtæki eins og Veislan og fleiri til sem skilja mikilvægi Gróttu fyrir bæjarfélagið og rétta því fram hjálparhönd.
Veislan er alhliða veisluþjónusta sem býður upp á fyrsta flokks mat og heildarlausn í veisluna þína ásamt persónulegri þjónustu. Veislan, sem var stofnuð árið 1988, er staðsett á Austurströnd 12, sjá nánar á www.veislan.is
Veislan traustur bakhjarl














