Lokahóf meistaraflokks kvenna

Sunna MaríaÁ laugardaginn fór fram lokahóf meistaraflokks kvenna í handknattleik. Tímabil liðsins gekk framar vonum og komst liðið í úrslitakeppnina. Þar mætti liðið sterku ÍBV-liði og tapaði í oddaleik. Miklar framfarir voru á liðinu í vetur. Á laugardaginn fór fram lokahófið þeirra.

Efnilegasti leikmaður - Lovísa Rós Jóhannsdóttir
Bestu leikmenn að mati leikmanna - Sunna María Einarsdóttir og Unnur Ómarsdóttir
Leikmaður ársins - Sunna María Einarsdóttir 

Seinna um kvöldið fór fram lokahóf HSÍ. Þó að engin verðlaun hafi komið til Gróttu var Ómar Örn Jónsson tilnefndur sem þjálfari ársins og var þar í góðum hóp þjálfara, Stefáni Arnarssyni og Einari Jónssyni.

Óskum við stelpunum og Ómari til hamingju með þetta.

Lovísa Rós

Lovísa Rós Jóhannsdóttir var valin efnilegasti leikmaðurinn á lokahófinu. Hérna rífur hún sig upp gegn Stjörnunni í vetur

Unnur Ómars

Unnur Ómarsdóttir var valin önnur af bestu leikmönnum ársins að mati leikmannanna sjálfra. Hérna er hún á vítapunktinum gegn ÍBV í vetur

Sunna María 1

Sunna María var valin leikmaður ársins sem og besti leikmaðurinn að mati leikmannanna sjálfra. Hérna eru hún í miðju gegnubroti gegn ÍBV 

  • Á döfinni

  • Grótta TV

left direction
right direction