Aron, Arnór, Hjalti og Þorgeir valdir í U16

AronUm helgina var valinn æfingahópur hjá U16 ára landsliðinu. Í þeim hópi voru fjórir Gróttumenn en það voru Aron Dagur Pálsson, Arnór Guðjónsson, Hjalti Már Hjaltason og Þorgeir Bjarki Davíðsson. Allir þessir leikmenn léku með 4.flokki karla í vetur sem lenti á dögunum í öðru sæti á Íslandsmótinu.

Allir drengirnir eru fæddir árið 1996 og hafa áður verið valdir í U16 ára landsliðið. Þrír þeirra léku eftirminnilega gegn Frökkum í haust og stóðu sig vel, þeir Arnór, Hjalti Már og Þorgeir Bjarki. Aron Dagur var valinn í seinasta æfingahóp og hefur greinilega heillað landsliðþjálfarann, Einar Guðmundsson enda hefur Aron Dagur leikið feikilega vel í vetur.

Landsliðshópurinn kemur saman um næstu helgi en æft verður tvær næstkomandi helgar.

Þorgeir

Þorgeir Bjarki Davíðsson 

Hjalti

Hjalti Már Hjaltason

Arnór 1

Arnór Guðjónsson

Aron

Aron Dagur Pálsson

  • Á döfinni

  • Grótta TV

left direction
right direction