Dregið í bikarnum á morgun - hverjir eru óskamótherjar?

Garðar 09Grótta tryggði sér sæti í 32-liða úrslitum bikarkeppni KSÍ í gærkvöldi en í hádeginu á morgun verið dregið í næstu umferð. Öll liðin úr Pepsi-deildinni bætast nú við þau lið sem þegar hafa tryggt sig áfram og verður spennandi að sjá hverjir mótherjar Gróttu verða. Fréttastofa Gróttusport fékk nokkra Gróttumenn til að spá í spilin og velja sína óskamótherja. UPPFÆRT - dregið var nú fyrir stundu og lenti Grótta á móti Stjörnunni á útivelli. Leikið verður 7. júní gegn Pepsi-deildarliðinu á heimavelli þeirra í Garðabæ!

 

 

Eyjólfur Garðarsson - stórljósmyndari 

EyjoÉg væri til í að mæta Leikni R. í Ghettóinu. Við eigum harma að hefna þar!

 

Guðjón Kristinsson - þjálfari 3. flokks karla hjá Gróttu 

GauiÉg vil fá heimaleik, ekki spurning. Myndi segja KV ef þeir væru ekki dottnir út svo óskamótherjar mínir eru ÍA, frændur mínir af Akranesi. Þeir hafa byrjar Íslandsmótið vel og spila flottan bolta.

 

Gunnar Þorbergur Gylfason (Gróttu-Gussi) - þjónustufulltrúi Landsbankans við Hagatorg
Gussi 

Ég verð að segja KR. Veit ekki hvort ég myndi vilja fá þá heim eða fara í Frostaskjólið. Við fengum þá heim 2009 sem var frábær dagur. Ætli það verði ekki bara gaman fyrir Seltirninga að fjölmenna á KR-völl og takast á við Íslandsmeistarana.

 

Jón Sigurðsson - stjórnarmaður í knattspyrnudeild Gróttu

Jón SigEinhverjir léttir, en það er auðvitað enginn leikur léttur svo ég ætla ekki að segja það. Maður vildi helst sleppa við liðin úr okkar deild, ekki nógu mikil stemning í því. Þróttur R. eru mínir óskamótherjar. Þetta er skemmtilegur klúbbur sem spilar í glæsilegum Stoke City búningum.

 

Kristín Finnbogadóttir - framkvæmdastjóri Gróttu

GittaÉg hef trú á mínum mönnum svo ég væri bara til í að fá eitthvert stórliðið á Gróttuvöll. Held bara að það væri gaman að fá Skagamenn í heimsókn og slá vallarmetið frá því í KR leiknum 2009.

 

Bjarni Torfi Álfþórsson - framkvæmdastjóri Specialisterne á Íslandi og fyrrverandi formaður Gróttu 

Bjarni Torfi

 Ég hefði viljað Snæfell en því miður eru þeir dottnir út. Þá hefði verið gaman að fá ÍR með Viggó innanborðs en þeir eru líka dottnir út. Það væri ekki ónýtt að fá KFUM piltana af Hlíðarenda í heimsókn á Gróttuvöll en einnig væri ég til í að fá Þrótt Vogum. Þá myndi ég bjóða Bergi bróður mínum og bæjarfulltrúa í Vogum á völlinn og jafnvel popp úr sjoppunni líka. 

Fréttastofa Gróttusport þakkar þessu mikla Gróttufólki fyrir spjallið. Nú er að bara að bíða og sjá hvað kemur upp úr pottinum á morgun! 

 

 

Undirsíður

  • Á döfinni

  • Grótta TV

left direction
right direction