Anett Köbli ráðinn þjálfari 5.fl. kvenna

Anett Köbli

Anett Köbli hefur verið ráðinn þjálfari 5.flokks kvenna fyrir næsta tímabil. Anett er 34 ára gömul og hefur leikið hér á landi til fjölda ára en hefur hún hefur meðal annars leikið með Gróttu. Anett er einn albesti kvennaleikmaður sem leikið hefur hérlendis en hún lék á árum áður með ungverska liðinu Györi í heimalandi sínu.

Anett hefur verið búsett á Nesinu í mörg ár og vinnur á Leikskóla Seltjarnarness. Hún hefur reynslu af starfi með börnum og unglingum en miklar væntingar eru bundnar við komu hennar til Gróttu.

Með ráðningu Anett á eingöngu eftir að ráða þjálfara á örfáa flokka en sú vinna er langt komin. Fréttir þess efnis munu birtast innan skamms.

  • Á döfinni

  • Grótta TV

left direction
right direction