Grótta aftur á beinu brautina eftir sigur á Njarðvík
Gróttumenn hafa fundið fjölina sína á ný eftir eyðimerkurgöngu undanfarnar vikur. Fjölin góða fannst í seinni hálfleiknum á móti Njarðvík sem var í heimsókn á Gróttuvelli á föstudag. Þá setti Gróttuliðið í mikinn gír og skoraði fjögur mörk á stuttum tíma og sigldi þannig í höfn góðum og mikilvægum sigri. Jónmundur Grétarsson og Magnús Bernhard Gíslason skoruðu báðir tvö mörk fyrir Gróttu en Viktor Brynjarsson minnkaði muninn fyrir Njarðvík í uppbótartíma.
Fyrri hálfleikur var ekki mikið fyrir augað á ágætu föstudagskvöldi á Nesinu. Báðum liðum gekk illa að ná upp spili þó að leikur gestanna frá Njarðvík hafi verið ögn skárri. Seinni hálfleikurinn olli þó áhorfendum engum vonbrigðum, sérstaklega ekki áhangendum Gróttu sem fylgdust með sínum mönnum skora fjögur laglegt mörk.
Það fyrsta kom á 64. mínútu og var það af dýrari gerðinni. Þar var á ferðinni Jónmundur Grétarsson sem smurði knettinum í markhornið fjær fyrir utan teiginn hægra meginn. Glæsilegt mark hjá Jonna.
Á 70. mínútu bætti Magnús Bernhard Gíslason um betur þegar hann var réttur maður á réttum stað á fjærstönginni eftir sendingu frá Helga Frímannssyni. 5 mínútum síðar skilaði samvinna þeirra félaga árangri í annað sinn þegar Maggi tók sendingu Helga niður í teignum og skoraði í hornið vinstra megin.
Frans Veigar Garðarsson fékk að líta sitt annað gula spjald á 79. mínútu og var vikið af velli í kjölfarið. Hann verður því í banni í næsta leik.
Á 87. mínútu var dæmd vítaspyrna þegar Jónmundur Grétarsson virtist vera felldur í teignum. Þjálfari Njarðvíkur var afar ósáttur með dóminn og gekk berserksgang í tækniboxinu og lét varamannaskýlið finna hraustlega fyrir því. Kjánaleg hegðun það. Jónmundur fór sjálfur á punktinn og kom Gróttu í 4-0.
Njarðvíkingum tókst að rétta sinn hlut í uppbótartíma en þá skoraði Viktor Bergmann Brynjarsson í sínum fjórða meistaraflokksleik fyrir þá grænklæddur.
Niðurstaðan góður sigur Gróttu þar sem liðið náði að setja í alvöru gír í seinni hálfleik. Nú þarf að láta kné fylgja kviði en á föstudaginn fara okkur menn norður til Dalvíkur og leika við heimamenn í 9. umferð 2. deildarinnar.
Lið Gróttu í leiknum:
Jón Kolbeinn Guðjónsson, Bjarni Jakob Gunnarsson, Dusan Ivkovic, Guðmundur Marteinn Hannesson, Hrafn Jónsson (Magnús Bernhard Gíslason '43), Grétar Ali Khan, Frans Veigar Garðarsson, Steindór Oddur Ellertsson, Helgi Frímannsson, Sölvi Davíðsson (Ásgeir Hallgrímsson '89), Jónmundur Grétarsson (Jóhannes Hilmarsson '89)
Ónotaðir varamenn: Bjarni Freyr Ingólfsson, Garðar Guðnason, Kristófer Þór Magnússon, Hafsteinn Bjarnason

Helgi lagði upp tvö mörk

Frans fékk að líta rauða spjaldið á föstudag

Jonni og Maggi fagna þriðja markinu
Myndir: Eyjólfur Garðarsson














