Bjarni Jakob í 100 leikja klúbbinn
Varnarmaðurinn sterki Bjarni Jakob Gunnarsson hefur náð þeim merka áfanga að spila 100 leiki fyrir meistaraflokk Gróttu. Bjarni Jakob og Enric Már Du Teitsson brutu báðir 100 leikja múrinn fyrr í þessum mánuði en við munum fjalla um Enric á næstu dögum. Nú eru 5 leikmenn í Gróttuliðinu sem hafa spilað yfir 100 leiki en Garðar Guðnason, Grétar Ali Khan og Sölvi Davíðsson eru hinir þrír. Fréttastofa Gróttusport fer hér yfir feril Bjarna Jakobs og birtir brot úr símaviðtali sem var tekið við kappann í gær.
Bjarni Jakob Gunnarsson er fæddur árið 1985 og ólst hann upp á Seltjarnarnesi. Bjarni æfði fótbolta með Gróttu upp yngri flokkanna en þar sem jafnaldrar hans voru ekki mjög fótboltalega sinnaðir fann hann sig knúinn til að skipta yfir í KR í 4. flokki. Þar hitti hann fyrir drengi sem hafa leikið með Gróttu síðustu ár, þá Ólaf Pál Johnson, Steindór Odd Ellertsson og Magnús Bernhard Gíslason.
Eftir að 2. flokki lauk skipti Bjarni yfir í Gróttu og lék með liðinu í 3. deildinni en það ár var Grótta hársbreidd frá því að komast upp um deild. Árið 2006 reyndi Bjarni fyrir sér hjá Fjölni en fékk fá tækifæri svo hann sneri aftur á Nesið um mitt sumar. Síðan þá hefur Bjarni spilað með Gróttu og er nú kominn í 105 leiki fyrir félagið.
Bjarni Jakob leikur sem varnarmaður og er þekktur fyrir baráttuþrek sitt og vilja. Hann leggur sit ætið allan fram og drífur sína menn stöðugt áfram á vellinum.

Fréttastofan heyrði hljóðið í Bjarna síðdegis í gær og sagði hann það góða tilfinningu að ná 100 leikja markinu:
Þetta er bara rosalega flottur áfangi og góð tilfinning að hafa spilað 100 leiki fyrir Gróttu. Maður stefndi alltaf að því að ná 100 leikjum fyrir eitthvað félag og ekki verra að það hafi verið með liðinu sem maður byrjaði í á sínum tíma.
Eins og áður sagði slógu Bjarni Jakob Enric 100 leikja markið fyrr í mánuðinum en þrátt fyrir það hefur staðið á blómaafhendingum frá stjórn knattspyrnudeildar.
Þetta er auðvitað fyrir neðan allar hellur. Gaggi fékk blóm, Ali fékk blóm og svo fékk Sölvi blóm núna í vor. Við Rico bíðum allavega spenntir eftir okkar blómvendi, hann hlýtur að detta inn á næsta heimaleik sagði Bjarni Jakob léttur í bragði.
Nú hafa 5 leikmenn spilað fleiri en 100 leiki fyrir Gróttu og styttist í Hrafn sem er kominn í í 95 leiki. Við spyrjum Bjarna hvort að ekki sé mikilvægt fyrir fótboltalið að hafa innanborðs kjarna sem hefur spilað lengi saman hjá klúbbnum. Ekki stendur á svari hjá varnarjaxlinum:
Það er algjört möst að hafa sterkan kjarna sem hefur verið lengi saman og þekkir félagið. Það þýðir ekki að hafa bara utanaðkomandi menn sem stendur á sama um klúbbinn og hvað er að gerast. Menn þurfa að vera með Gróttuhjartað á réttum stað og ég vona að þessi hópur standi undir því.
Að lokum ræðum við föstudaginn þegar Grótta sækir nýliða KFR heim á Hvolsvöll en þeir eru sem stendur neðstir í deildinni.
Stemningin í hópnum er gríðarlega góð og leikurinn á móti Hamri gaf okkur byr undir báða vængi. Við náðum að halda hreinu og vonandi tekst okkur það aftur á föstudag ásamt því að setja nokkur mörk. Við ætlum okkur að byrja þessa seinni umferð af krafti og hífa okkur í rétta átt upp töfluna.
Fréttastofan þakkar Bjarna kærlega fyrir spjallið og óskar honum til hamingju með leikina 100. Umfjöllun um Enric Má Du Teitsson birtist á vefnum í næstu viku.

Hárprúður Bjarni Jakob í leik með Gróttu sumarið 2007

Bjarni og félagar fagna sigri í 2. deildinni árið 2009

Magnús Bernhard og Bjarni Jakob í stuði eftir leik

Bjarni í eldlínunni á móti KF














