Gaui og Dusan stýra meistaraflokki út tímabilið

skórStjórn knattspyrnudeildar hefur sagt Sigurði Helgasyni þjálfara meistaraflokks upp störfum og munu þeir Guðjón Kristinsson og Dusan Ivkovic stýra liðinu út tímabilið. Meðfylgjandi er fréttatilkynning frá knattspyrnudeild.

"Stjórn knattspyrnudeildar Gróttu hefur tekið ákvörðun um að segja upp samningi við Sigurð Helgason sem hefur þjálfað meistaraflokk félagsins í tæp tvö ár. Gengi Gróttuliðsins hefur verið langt undir væntingum í sumar og eftir þrjá tapleiki í röð töldum við að breytinga væri þörf.

Siggi Helga hefur starfað hjá knattspyrnudeild Gróttu frá haustinu 2006 og unnið mikið og gott starf fyrir félagið á þessum árum og verið stór hluti af uppbyggingu deildarinnar. Stjórnin þakkar Sigga kærlega fyrir samstarfið og óskar honum velfarnaðar í framtíðinni.

Guðjón Kristinsson og Dusan Ivkovic munu stýra liðinu út tímabilið. Guðjón hefur þjálfað yngri flokka félagsins um langt skeið og hefur á þessu tímabili stýrt 3. flokki karla með góðum árangri. Dusan hefur verið aðstoðarþjálfari Sigurðar frá áramótum en hann mun einnig taka við þjálfun 2. flokks karla"

Fréttastofa Gróttusport vill nota tækifærið og þakka Sigga fyrir góðan tíma hjá Gróttu. Þegar Siggi kom til starfa tímabilið 2006/2007 lyfti hann 4. flokki karla og kvenna upp á ný plön og fór með strákana upp um riðil það sumar. Að sama skapi stýrði hann fámennum 2. flokki af miklum myndarbrag og myndaði þar kjarna sem hélt áfram og stóð sig með glans sumarið 2008.

Siggi tók síðar við 3. flokknum en þar var hápunkturinn án efa á Norway Cup í ágúst 2010 þegar A-lið Gróttu vann til bronsverðlauna á því gríðarstóra móti.

Fréttastofan óskar Sigga góðs gengis á næstu misserum þar sem hann mun vonandi halda áfram í fótboltanum af lífi og sál eins og honum einum er lagið.

siggihelga

 

Siggi Helga2

  • Á döfinni

  • Grótta TV

left direction
right direction