Lokapistill frá Almería

Spillík æfing

Komiði sæl og blesstuð aftur, herbergi 403 átti víst að sjá um þessa pistla og er það Ingvar sem heilsar ykkur aftur. Úlli taldi sig víst of hreinskilinn eða öllu heldur opinskáan (er það nú orð) að eðlisfari til að geta hent einhverjum orðum niður á blað svo ég tók að mér skriftir...aftur!

Byrjum á föstudagskvöldinu þar sem hóprinn, allavega mikill meirihluti hópsins, skellti sér á Karóki-stað eftir að hafa spilað æfingaleik nr. 1 gegn Frömurum. Bretaprinsinn reið á vaðið og þá er ég auðvitað að tala um hann Vilhjálm litla. Hann söng af mikilli innlifun lagið Incomplete eftir uppáhaldshljómsveitina sína. Svo mikil var innlifunin að Jölli taldi sig geta fylgt þessu eftir. Jölli "Sex-bomb" færði okkur drengjunum eina stórkostlegustu útgáfu sem við höfum orðið vitni að og mun lengi vera í minnum okkar. Því miður var það ekki á góðan hátt. Fleiri góðir tóku lagið áður en kvöldið var úti og þótti Jón Heiðar aka Ingó Idol bera af. Menn segja að hann sé eins og mannlegur glimskratti!

Þá er það laugardagurinn sem byrjaði á styrktaræfingu hjá honum Einari Ól. Einar kann sitt far og lét hópinn æfa á ströndinni og var farið í nokkrar styrktaræfingar undir brennandi sólinn yfirleitt í forminu yngri vs gamlir og endaði æfingin auðvitað á hörkuleik í strandblaki. Lagt var undir og ég nenni eiginlega ekki að segja meira frá þessum leik annað en að menn voru sammála um að undirritaður hafi átt tilþrif dagsins. Svokallaða hjólhestaspyrnu frá endalínunni yfir vallarhelming andstæðinganna. Löng saga stutt og eldri enduðu hlaupandi allsberir í sjóinn (skelli þessu tapi á dómara leiksins, EÓÞ). Ekki meira um það, seinni æfingin var öllu hefðbundnari, Sir Ágúst stóð fyrir handboltaæfingu þar sem verður að viðurkennast að upphitunarfótbolta-sigurvegararnir voru krýndir. Eldri þurftu aftur að strýpast nokkrar ferðir fram og til baka í höllinni í refsingarskyni. Um kvöldið var farið út að borða, flestallir fóru á pizzastaðinn sem hefur vakið mikla lukku, undirritaður ásamt fleirum hafa vanið komur sínar þangað óvenju oft ásam einum kebab stað í nágrenninu sem hefur vakið mikla lukku. Laugardagskvöldið endaði svo frekar snemma þar sem við áttum leik í morgun, sunnudag við Framara.

Núna í þessum töluðu orðum er klukkan orðin 16:00, menn nýkomnir upp á hótel úr æfingaleik gegn Fram, leikurinn var mun betri en sá fyrri og það besta sem við höfum sýnt til þessa. Aldrei þessu vant fáum við frí seinni partinn og eru menn mikið að veltja fyrir sér hvað skal gera. Eflaust munu einhverjir skella sér í vatnsrennibrautargarð, aðrir á ströndinni og jafnvel nokkrir í verslunarleiðangur. Eitt er víst að menn munu skemmta sér vel. Tveir dagar eftir og æfingatörnin mestöll yfirstaðin. Á morgun verður rematch á morgun í strandblakinu.

Ætlið það sé ekki best að enda þetta á nokkrum punktum sem vert er að segja frá:

- Vilhjálmur hefur verið mjög áhugaverður í þessari ferð, hann segist vera stútfullur af Flórenz-molum, fannst ekkert skrýtið við það að kári sagði nei þegar hann spurði hvort við myndum ekki spila 2x60 mín við Framarana. Gullmolarnir gjörsamlega streyma út úr honum en eins og hann segir sjálfur, þá er hann bara einstaklega orðóheppinn.

- Kristján og Villi skyldu ekkert í því af hverju pizzan bragðaðist svona illa hjá þeim í gær. Þeir félagarnir höfðu þá helt ediki yfir hana í stað hvítlauksolíu.

- Margir strákanna orðnir vel brunnir. Árni hefur ekki farið af sundlaugarbakkanum síðan Lalli hafi orð á því að þeir væru eiginlega janfnhvítir.

- Gula hreiðrið mun eiga erfiða mánuði framundan við að kluppa saman allt efnið úr GOPro vélinni.

Gunni snobb lét næstum því lífið þegar á hann settist minnsta padda sem menn hafa séð. Endaði þó allt vel og drengurinn þurfti að lokum ekki áfallahjálp.

- Kristján lennti á leigubílastjóra sem talaði ensku. Trúir honum enginn enn þá.

- Jölli hefur farið aðeins fram úr sér hérna í útlandinu. Fékk víst synjun á kortið þegar hann ætlaði að borga 3 evrur. Drengurinn dó ekki ráðalaus og senti hóp-sms á Múla, 1919 og fleiri góð smálánafyrirtæki úr Iphoninum sem er einmitt á raðgreiðslum. Kann´etta drengurinn.

- Jói gaf boltann einu sinni í síðasta upphitunarfótbolta. Átti samt ekki að vera sending skildist mér.

- Ólafur Ægir hefur fylgt Robba í Fram eins og skugginn í ferðinni, fékk sér fastar fléttar eins og Robbi og tók þær svo út alveg eins og Robbi. Robbi skellti sér reyndar ekki í Tweety-tattoo á brjóstkassann. Þetta er ekki JK.

Jæja, komið gott í bili, Ingvar Kristinn kveður að sinni. Haukur orðinn óþreyjufullur, kominn í Speedo-skýluna og vill fara komast á bakkann.

Mér skilst að þetta sé lokapistillinn, svo við í herbergi 403 þökkum kærlega fyrir okkur. Lífið heil. Ingvar, Úlli/Júlli og Haukur.

  • Á döfinni

  • Grótta TV

left direction
right direction