Grótta fékk bikarmeistara Selfoss í heimsókn á Nesið sunnudaginn 22.apríl. Búist var við hörkuleik enda liðin í 4. og 5.sæti deildarinnar. Gróttustrákarnir byrjuðu leikinn af miklum krafti, vel einbeittir og tilbúnir í slaginn. Heimamenn komust strax yfir og leiddu leikinn strax frá upphafi. Munurinn jókst þegar leið á fyrri hálfleikinn og sigurinn í raun aldrei í hættu.