3.flokkur karla

Gróttusigur hjá 3.fl. karla í undanúrslitum

Arnor gegn StjornunniÁ mánudag gerði 3. flokks lið Gróttu sér lítið fyrir og tryggði sér þátttökurétt í úrslitaleik Íslandsmótsins. Liðið mætti þá Stjörnunni sem lenti í 4. sæti deildarkeppninnar en Grótta varð deildarmeistari. Leikurinn fór fjörlega af stað og liðin skiptust á að skora, heimamenn leiddu þó lengst af hálfleiksins. Varnarleikur liðsins hefur verið betri en á móti kemur þá var sóknarleikurinn flottur. Í hálfleik leiddi liðið 15-13 eftír fínar lokamínútur hálfleiksins.

Nánar...

3.flokkur karla í undanúrslit

Andri gegn SelfyssingumÁ laugardaginn mættust Grótta og Selfoss í átta liða úrslitum 3.flokks karla. Deildarkeppninni lauk fyrir skömmu en Grótta endaði í efsta sæti deildarinnar á meðan Selfyssingar enduðu í 6.sæti. Liðin mættust síðast í byrjun febrúar og þá sigraði Grótta með fjögurra marka mun. Gestirnir að austan eru með hörkulið og því ljóst að Grótta þurfti á öllu sín að halda ef liðið ætlaði sér að komast áfram í undanúrslit.

Nánar...

Þrír frá Gróttu á U17 ára landsliðsæfingum

Torgeir vs FHDagana 26. - 27.mars fóru fram landsliðsæfingar drengja sem eru 17 ára og yngri. Æfingarnar voru samtals þrjár talsins, tvær á þriðjudegi og ein á miðvikudegi. Grótta átti þrjá fulltrúa sem allir leika með sterku 3.flokks liði félagsins sem nýverið náði þeim góða árangri að verða deildarmeistarar í sínum flokki.

Nánar...

3.flokkur karla deildarmeistarar !

Oli_AegirNú fyrr í kvöld fór fram sannkallaður stórleikur í 3.flokki karla þegar Grótta mætti FH-ingum í Hertz-höll okkar Seltirninga. Fyrir leikinn voru bæði lið með afgerandi forskot í 1.deildinni en Grótta þó með fjögurra stiga forskot fyrir leikinn. Með sigri í leiknum myndi Grótta tryggja sér deildarmeistaratitilinn en fyrr í mánuðnum höfðu FH-ingar unnið sigur á Gróttu í bikarkeppninni eftir framlengdan leik. Það mátti því búast við hörkuleik á Nesinu eins og kom bersýnilega í ljós.

Nánar...

3.flokkur karla á sigurbraut

Thorgeir_gegn_ValÞá er komið að næsta pistlapakka frá leikmönnum 3. flokks karla en leikmenn hafa skipst á að skrifa um leiki liðsins í vetur. Mikið leikjaálag hefur verið eftir áramót og hver leikurinn rakið annan hjá Gróttu 1. Liðið er sem stendur í efsta sæti 1. deildar með fjögurra stiga forskot á FH-inga sem reyndar eiga leik til góða á okkar menn.

Nánar...

Fleiri greinar...
  • Á döfinni

  • Grótta TV

left direction
right direction