4.flokkur karla

4.flokkur karla kominn í undanúrslit

4.fl. karla yngri fagnarÁ miðvikudaginn áttust við Grótta og Selfoss í 8-liða úrslitum íslandsmótsins í 4.flokki karla yngri. Liðin enduðu í 4. og 5.sæti deildarkeppninnar og átti Grótta heimaleik þar sem liðið endaði í því fjórða. Jafnræði var með liðunum til að byrja með en Grótta hafði alltaf frumkvæðið. Þegar líða tók á hálfleikinn komst Grótta í nokkurra marka forskot. Staðan í leikhléi var 12-8 fyrir Gróttu.

Nánar...

Bikarævintýri 4.flokks karla lokið

Grotta_HK_Siggi_og_HannesÁ fimmtudagskvöld lék 4.flokkur karla í undanúrslitum í bikarkeppni HSÍ. Leikurinn var gegn Selfyssingum og fór leikurinn fram fyrir austan fjall í flottri umgjörð heimamanna. Fyrirfram mátti telja að Selfyssingar væru með mun sterkara lið enda drekkhlaðið af landsliðsmönnum. Allt getur hins vegar gerst í bikar og svo var raunin í fyrri hálfleik. Bæði lið léku gríðargóðan varnarleik í fyrri hálfleik.

Nánar...

4.flokkur karla í undanúrslit bikarsins

Fannar_gegn_KR

Á miðvikudagskvöld lék 4.flokkur karla í undanúrslitum bikarkeppninnar en mótherjarnir voru nágrannararnir í KR. KR-ingar hafa náð mikilli velgengni undanfarin ár með þennan flokk og því mátt búast við hörkuleik á Nesinu. Okkar menn hófu leikinn af miklum krafti og voru fremri á nær öllum sviðum. Frábær varnarleikur var lykillinn að fimm marka forystu í hálfleik, 14-9.

Nánar...

6 leikmenn á úrtaksæfingum U15

grotta-akyrNýverið var valinn úrtakshópur HSÍ hjá strákum fæddum 1998. Við Gróttumenn getum sannarlega verið ánægðir með okkar hlut því 6 leikmenn okkar voru valdir og þurfa svo sannarlega að sýna sig og sanna á þessum úrtaksæfingum sem verða í formi leikja. Hópnum verður skipt niður í fjögur lið sem spila innbyrðis. Frá Gróttu voru valdir bræðurnir Jón Friðrik, Kristján og Þór Guðjónssynir auk Gísla Gunnarssonar, Jóhanns Óskars Jóhannssonar og Ragnar Þórs Snælands.

Nánar...

4.flokkur karla kominn í 8-liða úrslit

1997_gegn_FH4.flokkur karla lék á fimmtudaginn í 16-liða úrslitum Símabikarsins gegn Fjölni. Grótta hóf leikinn af miklum krafti og ætlaði sér greinilega áfram í bikarnum. Að fyrri hálfleik loknum var staðan 7-17 Gróttu í vil þar sem mörkin komu úr öllum regnbogans litum. Varnarleikurinn var sterkur með Þór í góðu stuði í markinu. Í síðari hálfleik hélt liðið áfram að auka muninn en þegar uppi var staðið hafði liðið unnið 12 marka sigur, 18-30.

Nánar...

Fleiri greinar...
  • Á döfinni

  • Grótta TV

left direction
right direction