Líkt og strákarnir fóru stelpurnar á yngra ár 5. flokks kvenna (f. 2000) til Akureyrar helgina 12.-14.apríl til þess á sínu seinasta íslandsmóti vetrarins. Grótta lék í 3. deild mótsins þar sem að liðið féll úr 2. deild á síðasta móti þar sem þátttaka þeirra féll niður vegna misskilnings um tímasetningu leikja. Vegna forfalla bættust tvær stelpur úr 6. flokki, Birta og Vala, í hópinn og var af þeim mikill styrkur.