6.flokkur kvenna
Lið 2 og lið 4 meistarar í sínum deildum
Helgina 20. - 22. apríl fór fram síðasta Íslandsmót vetrarins hjá 6.flokki kvenna yngri. Grótta sendi fjögur lið til keppni en 24 stúlkur æfa í árgangnum sem er mikill fjöldi. Mótið var haldið í Digranesi og hafði HK umsjón með því. Það má með sanni segja að liðin fjögur hafi staðið sig ótrúlega vel um helgina en tvö gull, tvö silfur og eitt brons leit dagsins ljós.
|
|
|






Um helgina fór fram fjórða íslandsmót eldra árs í 6.flokki kvenna. Mótið var haldið af Víkingum og fór fram í íþróttahúsi þeirra, Víkinni. Margar stelpur æfa í 6.flokki kvenna og dæmi um það eru þrjú lið skráð til leiks á eldra ári. Það er skemmst frá því að segja að Grótta 1 vann 1.deildina með glæsibrag, Grótta 2 lent í 3.sæti í sinni deild og Grótta 3 lenti í 2.sæti í sinni deild. Flottur heildarárangur það !








