Papco gerir 4 ára samning við Gróttu

photoPapco og knattspyrnudeild Gróttu skrifuðu nú fyrir helgi undir 4 ára samstarfssamning en Papco hefur verið styrktaraðili deildarinnar undanfarin ár. Papco veitir knattspyrnudeild góðan styrk en fyrir vikið munu allar pappírsfjáraflanir yngri flokkanna fara í gegnum Papco. Þá verður fyrirtækið með auglýsingu á nýrri keppnistreyju meistaraflokks eins og á treyju síðustu ára.

Nánar...

Markaleysi á Gróttuvelli

krissiÖnnur umferð 2. deildarinnar fór fram í gær þegar Grótta fékk Hamar í heimsókn á Gróttuvöll. Veðrið var ekki upp á marga fiska en ansi mikið rok var á Gróttuvelli og áhorfendur því vel klæddir. Okkar menn voru sterkari aðilinn í leiknum en náðu því miður ekki að skapa sér mörg opin færi og enduðu leikar því með markalausu jafntefli. Ekki óskabyrjun á Íslandsmótinu en betur má ef duga skal og næsti leikur strax á fimmtudaginn á móti Reyni í Sandgerði.

Nánar...

Sturri, Ingó og Marteinn lánaðir í Augnablik

sturriskotÁ síðasta degi félagaskiptagluggans voru þeir Sturlaugur Haraldsson, Ingólfur Þráinsson og Marteinn Már Jakobsson lánaðir frá Gróttu í 3. deildarliðið Augnablik. Ólafur þjálfari þekkir vel til í Kópavoginum enda fyrrverandi þjálfari Augnabliks. Fréttastofa Gróttusport tók stöðuna á Sturlaugi, sem reyndar meiddist á sinni fyrstu æfingu með Augnablik, en stefnir að að komast í gott spilform og snúa aftur í Gróttuliðið um mitt sumar.

Nánar...

Grótta áfram í bikarnum - dregið á morgun

hrafnstalulfurGrótta er komin í 32-liða úrslit Borgunarbikarsins eftir 2-1 sigur á Stál-úlfi í gærkvöldi. Okkar menn sýndu þó engar sparihliðar í gær og lentu meðal annars undir gegn 4. deildarliðinu. Allt hafðist þetta nú að lokum og spennandi að vita hverjir mótherjarnir verða í næstu umferð. Á síðustu 10 árum hefur Grótta fjórum sinnum mætt úrvalsdeildarliði en á Facebook-svæði Gróttu er nú könnun um óskamótherja stuðningsmanna. Hér að neðan má einnig sjá skemmtilega upprifjun frá eftirminnilegum bikarleikjum síðari ára. UPPFÆRT: dregið var í hádeginu og fékk Grótta heimaleik á móti Hetti þann 29. maí!

Nánar...

Fleiri greinar...
  • Á döfinni

  • Grótta TV

left direction
right direction