Dómaraklúbburinn
Dómaraklúbbur knattspyrnudeildar
Tilgangur klúbbsins er að fjölga dómurum í félaginu og um leið búa til skemmtilegan vettvang fyrir Gróttufólk á öllum aldri sem vilja leggja sitt af mörkum til þess að efla barna- og unglingastarf félagsins.
Hvað þarf að gera til að verða dómari? Skrá sig á dómaranámskeið sem verður haldið fimmtudaginn 18.mars í Fálkahreiðrinu. Til þess að fá skírteini þarf að standast skriflegt dómarapróf. Handhafar skírteinis fá frítt inná alla leiki á vegum KSÍ, að bikarleikjum undanskildum. Til þess að viðhalda skírteini þá þarf að skila 10 störfum í dómgæslu fyrir Gróttu. Gjaldgengir eru allir þeir sem að eru eldri en 15 ára (á yngra ári í 3.flokki). Að loknu prófi þá verða menn skráðir sem dómarar hjá Gróttu. Dómarastjóri mun þá raða dómurum á verkefni út frá aldri, reynslu og áhuga.
Við hvert dæmt verkefni þá fer nafn viðkomandi dómara í pott og mánaðarlega verður einn dómari dreginn og hlýtur að launum verðlaun frá knattspyrnudeild. Í lok sumars verður svo dreginn út einn dómari úr öllum pottinum en sá heppni hlýtur ferð fyrir tvo til Evrópu með Icelandair. Þannig að með hverju verkefni skilað í pottinn þá aukast líkur á stóra vinningnum umtalsvert. Mánaðarvinningarnir verða dregnir úr sama potti og nafnið fer aftur í pottinn að loknum drætti. Þannig að það er til mikils að vinna.
Þetta er kjörið tækifæri fyrir foreldra til að læra reglurnar og aðstoða við dómgæsluna hjá félaginu svo við getum verið stolt af okkar starfi og gert það enn betra. Ekki er verra að fá frímiða á alla leiki í öllum deildum ásamt því að eiga séns á því að vinna ferð til Evrópu með Icelandair. Í lok sumars verður svo létt uppskeruhátið þar sem að aðalvinningurinn verður dreginn út.
Allar upplýsingar veitir Ásmundur yfirþjálfari - asmundur@grottasport.is

