Knattspyrnudeild
Markmannsæfingar að hefjast hjá knattspyrnudeild
Knattspyrnudeild - yngri flokkar
Næstkomandi laugardag mun Kristján Finnbogason, markvörður meistaraflokks og markmannsþjálfari knattspyrnudeildar Gróttu vera með markmannsnámskeið fyrir alla tilvonandi og áhugasama markverði yngri flokka félagsins. Kristján mun þá taka á móti öllum þeim sem að vilja prófa að æfa mark og sýnir hvernig markvörðurinn fer að í markinu. Honum til aðstoðar verða markverðir meistaraflokks karla. Hér að neðan má sjá dagskrá laugardagsins.
Laugardagur 7. febrúar
10.00-11.00 Krakkar úr 1.-6. bekk (stelpur og strákar)
11.00-12.00 Krakkar úr 7.-10. bekk (stelpur og strákar)
Í kjölfarið mun Kristján síðan koma reglulega inná æfingar hjá yngri flokkum félagsins og mun þjálfari hvers flokks fyrir sig veita nánari upplýsingar um það.
Við hvetjum alla áhugasama til að mæta og taka þátt. Þetta kostar ekki neitt og allir þeir sem að hafa áhuga á því að æfa mark eru hjartanlega velkomnir!
Námskeiðið fer fram á gervigrasvelli Gróttu.

