Knattspyrnudeild
5.flokkur í 3.-4. sæti á Íslandsmótinu innanhúss
Knattspyrna - 5.flokkur karla
Strákarnir í 5.flokki Gróttu tóku þátt í Íslandsmótinu innanhúss um helgina en leikið er samkvæmt "futsal" reglum KSÍ. Helgina áður komst Grótta uppúr riðlakeppninni með því að vinna tvo leiki og gera eitt jafntefli en það tryggði sigur í riðlinum. Núna um helgina komst Grótta uppúr riðli með Víkingi, Val og Álftanesi og komst þar af leiðandi í undanúrslitaleik gegn Breiðabliki en okkar menn sáu aldrei til sólar í þeim leik enda Blikarnir með firnasterkt lið og enduðu sem sigurvegarar á mótinu.
Í leiknum um 3. sætið gerði liðið 1-1 jafntefli við Víði úr Garði en þar sem að ekki eru veitt verðlaun fyrir 3. sætið þá urðu liðin að láta sér lynda 3.-4. sætið.
Þeir sem að léku með liðinu þessar tvær helgar voru:
Agnar Guðjónsson
Dagur Guðjónsson
Ari Kvaran
Björn Andri Hilmarsson
Sturlaugur Orri Hauksson
Viktor Orri Pétursson
Kristófer Orri Pétursson
Pétur Steinn Þorsteinsson
Trausti Harðarson
Sigurður Örn Einarsson
Fannar Freyr Ómarsson
Einar Gylfi Harðarson
Þjálfarar strákanna eru Ásmundur Haraldsson og Orri Axelsson. Aðstoðarþjálfari er Magnús Örn Helgason.

