Knattspyrnudeild
Leikir helgarinnar í fótboltanum
Knattspyrnudeild
Það verður nóg að gera í fótboltanum um helgina en fjölmargir leikir eru á dagskrá hjá flestöllum flokkum um helgina. Á föstudag mun 2.flokkur spila við HK en leikurinn var færður úr Kópavoginum hingað útá Nes. Á laugardaginn mun svo 4.flokkur karla spila heima við Breiðablik en leikirnir hefjast kl. 10.00. Á sunnudaginn verða síðan þrír leikir á dagskrá en meistaraflokkur mun spila æfingaleik við U17 ára landsliðið í Kórnum kl. 10.00 en síðan seinnipartinn mun 4.flokkur kvenna leika frestaðan leik við Breiðablik kl. 16. á gervigrasvelli Gróttu. Síðan mun 6.flokkur karla loka helginni með æfingaleik við Víking í Egilshöllinni en leikirnir þar hefjast kl. 16.00.
Það er því nægur fótbolti hjá krökkunum og um að gera að koma og kíkja á leikina hjá Gróttu um helgina.

