Knattspyrnudeild
Úrslit úr leikjum helgarinnar í fótboltanum
Knattspyrnudeild
Það voru fjölmargir leikir spilaðir um helgina hjá flest öllum flokkum í fótboltanum. Á föstudagskvöldið tók 2.flokkur á móti firnasterku liði HK en beið lægri hlut. Á laugardaginn tók svo 4.flokkur karla á móti hinu Kópavogsliðinu, Breiðabliki, en þeir hafa ávallt á sterkum liðum að skipa. A-liðið tapaði en B-liðið var með góðan sigur. C-lið laut síðan einnig í gras fyrir Breiðabliki. Meistaraflokkur sigraði síðan landslið U17 nokkuð örugglega 4-1 en mörkin skoruðu Pétur Már Harðarson úr KR, sem er á reynslu hjá liðinu og síðan skoruðu þeir Jason Már Bergsteinsson og Guðmundur Hannesson sitt markið hvor.
Stelpurnar í 4.flokki kvenna léku síðan við Breiðablik en þeim reyndist það of stór biti og Blikastúlkur sigruðu nokkuð stórt. Stelpurnar náðu þó að skora eitt mark gegn þeim.
Í Egilshöll lék síðan 6.flokkur æfingaleik við Víkinga og töpuðu A, C og D naumlega en B liðið sigraði örugglega. Flott barátta og gott spil á köflum en leikurinn var liður í því að undirbúa strákana fyrir Goðamótið sem þeir fara á í lok mars.

